--> Björg bullar
<< current
Skoða gestabókina
Nafn :

Netfang :

Heimsíða :

Skilaboð :
This page is powered by Blogger. Isn't yours?

þriðjudagur, maí 17, 2005

Ég er að vinna á bókasafninu í skólanum.
Síminn hringdi og mér boðið tilboð - sem ég veit ekki hvort ég á að taka eða ekki. Það flækir sumarið til muna, væntanlega. Og þetta er stór ákvörðun til næstu ára... Guð minn góður - detta mér allar dauðar lýs úr höfði.

Ég vona reyndar í alvöru að ég sé ekki með lús (sem er reyndar mjög ólíklegt og ég er búin að vera dugleg að kemba...) því það er lús allt í kringum mig.

En aftur að bókasafninu - þá skildi hér kona eftir miða; þakkarbréf sem var til starfsfólks bókasafnsins og var mjög fallegt.

Ég er nú bara í hálfgerðu sjokki...


föstudagur, maí 13, 2005

Kæru vinir.
Ég þakka ykkur örfáu hræðunum sem líta hingað innfyrir endrum og eins. Það hryggir mig því mjög að greina frá því að ég hef ekkert merkilegt að segja!
Það má segja að þessi síða sé meðvitundarlaus í öndunarvél, og ég sé vélin sem blæs lífi í hana þegar mér hentar - svo að hún deyji ekki.
Því síðan er reisubók. Reisubók mín, þegar ég dvaldi í Brussel. Hver veit nema hún verði aftur reisubók þegar ég held á vit ævintýranna í ágúst. Þá gerumst við Sunna María Röltpokadýr og leggjum land undir fót, fyrst í flugvél en síðan aðallega á járnbrautalestum og ef til vill eitthvað á báti.

Ástæðan fyrir nenni mínu núna, er að ég er að skrifa ritgerð um aðra reisubók - Íslandsleiðangur Stanleys 1789. Vissuð þið að Stanley dvaldist við Hurðina í Brúnsvík, og varð 15 ára gamall yfir sig ástfanginn af Carólínu prinsessu, sem biðu hin „ömurlegu forlög að verða drottning Georgs IV, sennilega hins lélegasta af öllum konungum Englands".

...

djöfull var þetta leiðinlegur texti - þegar ég var búin að lesa hann yfir.

...

Ég hef beðið í fjóra mánuði eftir þessum degi... Ragnheiður, sem ég elska út af lífinu og er búin að sakna og sakna, er komin heim!


miðvikudagur, mars 23, 2005

Ég þakka góðar undirtektir, ég er ekki óþolandi... bara stundum.
En nú er kaffisala í fullum gangi og ef einhver vill kaupa Sólarglóð og Guatemala kaffi saman í pakka á 1200 kr. er viðkomandi beðinn að hringja í síma 8660942.
Og ef einhver er í góðu sambandi við ofsóknarbrjálaðan rækjukall sem svarar aldrei í símann sinn, er sá vinsamlegast beðinn að segja honum að kórinn vilji panta 215 2kg. pakka...

Sá misskilningur hefur lengi átt sér stað að Guðmundur húsvörður sé þurr og leiðinlegur maður, en hið sanna hefur komið í ljós. Guðmundur er gull af manni og alveg hreint yndislegur. Ég hef vitað það lengi, en aldrei komið því á framfæri. Því hefur nú verið bjargað.

Hildur Ploder á mikið hrós skilið fyrir að hafa hjálpað mér við að lagfæra heimasíðuna; Björg er ekki lengur í Brussel. En ef einhver á mynd af fallegu bleiku hjóli er viðkomandi vinsamlegast beðinn um að láta mig vita, því mitt virðist hafa týnst...

Inga skátarolla, Hildur Ploder, Hákon sérstakt, Sigríður Ása eiga einnig mjög mikið hrós skilið fyrir að bjarga lífi mínu...
...og auðvitað margir margir fleiri.

Einnig legg ég til að jógúrt verði nefnt skyrja, og að Ragnheiður leigi með mér íbúð næsta vetur.

Þetta er Björg sem talar ekki lengur frá Brussel.


miðvikudagur, mars 16, 2005

http://www.fridur.is/19mars/"> border="0" alt="19.3.2005 - HÖFNUM STRÍÐI!" title="19.3.2005 - HÖFNUM STRÍÐI!" src="http://fridur.is/19mars/banners/486x60.gif"/>>


þriðjudagur, mars 08, 2005

Ég er ómissandi...

...eða hitt þó heldur. Ég get gert mig brjálaða á sjálfri mér og ætti að skammast mín!
(Vá! Þarna fallbeygði ég Ég í öllum föllum í einni setningu!)
Af hverju gat ég ekki andskotast til að leyfa árshátíðarnefndinni til að sitja í skítnum og redda sali sjálf?!
Djöfulsins!


Annars er það að frétta að kórinn ætlar að selja rækjur fyrir páska, og þess vegna ætla ég að hringja í Nikulás rækukall. Það verður ábyggilega æðislega gaman. Frábært.

Djöfull er ég ógeðslega leiðinleg. Shitt!


mánudagur, febrúar 28, 2005

Ég hafði alltaf furðað mig á kvartinu í tilvonandi nýstúdentum. Kvartinu yfir því að þau vissu ekkert hvað þau ætluðu að gera... og hverju þau ættu þá að svara þegar þau væru spurð: og hvað ætlarðu svo að gera?
Þá leit ég á stúdentana og sagði: Þú hefur allan heiminn að fótum þér! Þú getur gert hvað sem er! Góða/i besta/i taktu þetta ekki til þín, og gerðu bara það sem þú vilt...

nú er ég vonandi tilvonandi nýstúdent og fæ sting í magann í hvert sinn sem gömul frænka eða mun yngri samnemandi spyr mig: Og hvað ætlarðu svo að gera?

------

En nú er vor í lofti og tími til að taka upp kjóla og draga hjólið fram úr bílskúrnum og senda Lady í sumarfrí... svona næstum.
Og þá kannski að fara að læra eitthvað líka, skrifa nokkrar ritgerðir... þið þekkið þetta.


mánudagur, desember 13, 2004

Eins og hver lifandi maður sér, er þetta blogg í lífshættu, og er ég sjálf óviss hvernig fer.

Þegar flestu illu verður aflokið, eins og best er þá skrifa ég loks grein um brenglun kyngerfingar í tölvuleikjum og sjónvarpsefni, sem og áhrif þess á ungmenni sem vita ekki betur.
Og svo jafnvel aðra um samgöngur.

Jólin byrja víst í Eymundsson, sem og í kórsöng. Blanda af þessu tvennu er ávallt jafn ánægjulegt og stressandi, og verður spennandi að sjá hvernig fer um þessi jól.

Þú og ég og hjól...