--> Björg bullar
<< current
Skoða gestabókina
Nafn :

Netfang :

Heimsíða :

Skilaboð :
This page is powered by Blogger. Isn't yours?

föstudagur, september 13, 2002

Föstudagur. 20'c hiti og sól. Heiðskýrt. Björg situr inni og lærir. Gefst að lokum upp og fer með tölvuna út. Les tuttugu og fimm kafla í njálu. Skilar Guðlaugu íslenskukennara verkefni 2. Fær pizzu og hvítvínsglas. Getur ekki meir. Í kvöld ætlar hún að horfa á sjónvarpið. Góða nótt.


fimmtudagur, september 12, 2002

Jæja, þá er það fyrsta hvunndagssagan, og það engin smá saga. Ég bið ykkur um að afsaka hvað hún er óskýr. hún var skrifuð í miklum flýti til Hildigunnar á msn í mörgum pörtum. límdi þá svo saman, og nenni ekki meir. ég átta mig hinsvegar á því að nú er komið að því að auglýsa þessa blessuðu heimasíðu, sem verður bara að fá að vera ljót í friði. en já... sagan:

Þannig var að ég hringdi í bankann í gær og pantaði viðtal við útibústjórann til að opna bankareiknig, sem ég gerði í morgun.
maðurinn var hinn huggulegasti. tók vegabréfið mitt og fyllti tölvuna af allskyns upplýsingum á meðan hann reyndi að gera sig eins skiljanlegan og hann gat um allt erfi bankans á sinni (reyndar ágætu) ensku.
og svo lítur hann á mig og segir, oh I see, you´re not eighteen yet. og ég segi no, I´ll be eighteen in november.
og þá segir hann, then we have a small problem, becuase it´s the law here in belgium that you have to be eighteen ot open a bank account. can your parnets come to sign some papers?
og ég segi nei, því að þau búi á íslandi.
þá hugsar hann mjög mikið, svo úr verður mjög dramatísk stund.
ég styn, og spyr hvort fólkið sem ég búi hjá geti srifað undir í staðinn
hann segir ekki neitt, bara þegir.
ég þori ekki að segja neittt bara þegi
svo pikkar hann eitthvað inn í tölvuna, lítur stíft á mig og segir:
your birthday is the 25 of august. okay?!
ég verð hálf vandræðaleg, veit fyrst ekki alveg hvað ég á að gera, átta mig svo á þessu öllu saman og get ekki annað en hlegið. Yes, HANN FALSAÐI KENNITÖLUNA MÍNA! Og það var bara svoleiðis!


miðvikudagur, september 11, 2002

Jæja, fyrst að internetkallarnit gátu loksins $&#/%(# til þess að tengja okkur við interetsamfélag alheimsins, hef ég ákveðið að halda uppi heimasíðunni minni. 'Eg bjó hana til alls fyrir löngu, en enn veit enginn af henni. Það er svosum ágætt þar sem mér finnst hún ljót.
Klukkan hjá mér er tíu mínútur í tvö, og ég er búin að vera í tölvunni í allan morgun. 'Eg er búin að vera í tölvunni inni í stofu, inni í eldhúsi, inni í herbergi og síðastenekkisíst uppi í rúmi þar sem ég er stödd núna. 'Otvíræður kostur þess að vera með þráðlaust net í ferðatölvu.
Hún Guðlaug íslenskukennarinn minn er ansi hress kona, og ég áttaði mig á því í morgun þegar ég fékk fyrsta tölvupóstinn frá VMA að ég er eitthvað eftirá í öllu. Þess vegna lofaði ég Guðlaugu að ég skildi drífa í því að lesa 45 kafla í Njálu og skila verkefni 2 úr þeim í síðastalagi á föstudaginn. Það væri í góðu lagi, ef ég hefði ekki áhyggjur af því hverju ég á eftir að lofa í ensku og þjóðhagfræði til þess að falla ekki.
Gott að geta hlustað á íslenska útvarpið. Kann vel við það. Muzik er til að ljósmynda mjög góð útvarpsstöð, en væri mun betri ef að fíflin hættu að velja lög.
'Agætt að vera tveim tímum á undan, ég átti Muzik klukkan níu í morgun, enda var klukkan bara sjö heima. Míns eigins djúkbox.