--> Björg bullar
<< current
Skoða gestabókina
Nafn :

Netfang :

Heimsíða :

Skilaboð :
This page is powered by Blogger. Isn't yours?

laugardagur, september 21, 2002

JÁ!!! Sko mína menn! Þeir geta þetta! Alltaf í boltanum!


föstudagur, september 20, 2002

Mamma, manstu þegar ég spilaði Scarborough Fair í tvö ár? Það eru ekki margir aðrir en Simon&Garfunkel sem geta samið lög sem maður getur spilað endalaust. Hvort sem maður er 18 ára í Brussel, eða 12 ára í Grafarvogi að læra á píanó.


fimmtudagur, september 19, 2002

Í fyrsta skipti -en örugglega ekki það síðasta- keypti ég mér belgiskt súkkulaði. Einn moli. Ömmu Bibbu hefði þótt hann rosalega góður.


Hápunktur dagsins í dag var án efa þegar Valdi kom heim úr vinnunni. Einhvur ljúfligur sem vinnur með honum er nýkominn frá landi ísa og elda, og gaf Valda þrjá græna ópalpakka. Hann gaf mér einn. Takk Valdi.


miðvikudagur, september 18, 2002

Eftir að hafa verið með mikið bull síðastliðna daga, er komið að alvöru fréttum.
Það er mikið að gera í skólanum, en kennararnir eru ágætir. Mjög hressir allir (líka Hálfdán!).
Í byrjun október stefni ég á Parísarferð, til að hitta Yrsu, Siggu Toll og Elsu Maríu Húsavíkurmær með meiru. Þetta var svosum löngu planað, en þegar ég fór að minnast á þetta við Cristiano vin minn, sagði hann mér að hann yrði allra líklegast einnig í borg Effelturnsins á svipuðum tíma. (Fyrir ykkur sem ekki vita höfum við Cristiano skrifast á í hátt á þriðja ár, og ég hef aldrei séð hann.) Tilgangur ferðalags hans yrði að taka myndir fyrir Walter vin sinn, þar sem sá síðarnefndi heldur tískusýningu á Tískuvikunni í París. Sama dag og Walter heldur sýninguna sína, fer ég á Sigur Rósar tónleika í Konunglega sirkusnum hér í Brussel.

Í dag fann ég loks (eftir þó nokkra leit) Watermael-center. Sjáiði til, í hverfinu mínu eru tvær miðjur. Boitsfort-center og Watermael-center. Ég keyri framhjá fyrrnefndu daglega. Það er skemmtilegra en hin. Sætara, franskara. Þar á horni er æðislegt bakarí þar sem bestu krossönt sem ég hef smakkað fást fyrir baun og kanil. Beint á móti bakaríinu (hinumegin við götuna, á miðri umferðareyju nokkurri) er skemmtileg sjón. Þar hefur einhver lagt alveg bleiku reiðhjóli. Á böglaberanum er gamall tré vínkassi, og í vínkassanum eru bleik blóm. Og bleika reiðhjólið stendur við umferðarskilti sem vísar á reiðhjólagötu. Ég þarf endilega að ná mynd af þessari furðulegu uppákomu, en það gæti orðið snúið vegna umferðarmenningar þeirra Belga. Það sem gerir umferðamenningu þeirra mjög merkilega, er að þeir fóru ekki að gefa út ökuskírteini fyrr en 1978. Þeir eru nú samt mjög hjálplegir, og vísa manni veginn villt og galið (bókstaflega!)
Belgar taka, eins og margar aðrar þjóðir, þátt í bíllausa deginum 22. September. Þá verður allri Brussel lokað fyrir umferð og fólk á leið í eða úr borginni getur lagt bílum sínum við borgarmörkin. Við erum ekki of bjartsýn á þetta, Íslendingarnir, og búums við hinu versta.

Í dag þegar ég opnaði pósthólfið okkar, beið mín pakki. Ég byrjaði strax að hugsa fallega til heimahaganna, þangað til ég opnaði pakkann og sá að þetta var set-up fyrir heimabankann frá BBL. Þá hló ég mjög mikið, og minntist síðustu bankaheimsóknarinnar. Ég fer aftur á morgun til að ná í debetkortið mitt. Þá geri ég ráð fyrir að þurfa að sitja í hálftíma á meðan Christophe Snel (kennitölufalsarinn) kennir mér að nota kortið. Ég held að Christophe viti ekkert um Ísland, nema að við búum í snjóhúsum og veiðum saltfisk.

Eins og kemur fyrir endrum og eins, er ég orðin verulega hungruð af öllu þessu tali um mat, og ætla að næla mér í eitthvað í gogginn. Hafið það gott, Björg hin brjóstgóða(marga).



þriðjudagur, september 17, 2002

Það er ágætist kostur að geta skemmt sér sjálfur:
Allir voru með tvö brjóst nema Björg, hún var með mörg.
Allir voru heima nema Anton, hann fór til London.
Allir voru heimskir nema Hildigunnur, hún var viskubrunnur.
Allir blésu í blöðrur nema Helgi, hann blés í belgi.
Allir drukku bjóra kalda, nema Olga sem drakk þá volga.
o.s.frv. o.s.frv.
en þá eru það kennararnir mínir...
Allir voru hressir nema Hálfdán, hann var hálf-down.
Allir fundu steina nema Lauga, hún fann auga.
Allir hétu Alli nema Palli, hann hét Kalli.

Allir fóru hagfræði, nema stærðfræði. Hún sneri sér að búðinni.



mánudagur, september 16, 2002

SOS (skipti) nammið búið (skipti) senda meira (skipti) til í að skipta á íslensku nammi og belgísku súkkulaði (skipti) athugið, þetta er neyðarkall (skipti) yfir og út (skipti)

P.s. mamma! ég er í alvöru með hálsbólgu og þessvegna er græni hálsbrjóstsykurinn búinn.


Það er sumt sem ég sakna meir en annars. Núna sakna ég mest þristanna úr Mararþaraborg.


sunnudagur, september 15, 2002

Hér á Berensheide er spennan farin að segja til sín. Allavega í mínum maga. Orðin óróleg og farin að líta á klukkuna í tíma og ótíma. Búin að gera magaæfingar og armbeygjur til þess að hita upp með strákunum, og senda þeim hugskeyti á meðan ég gerði nokkrar yoga æfingar. Þar á meðal stríðsmanninn. Manni veitir ekki af auka orku í svona stóran leik. Ekki nema þrjár mínútur í úrslitaleik KR-Fylkis, og kominn tími til að setja sig í samband við Rás 2. Megi sigurvegarinn vinna!