--> Björg bullar
<< current
Skoða gestabókina
Nafn :

Netfang :

Heimsíða :

Skilaboð :
This page is powered by Blogger. Isn't yours?

laugardagur, september 28, 2002

Bonjour!
Heima hja Michael var vaknad upp ur hadegi. Huseigandinn for til vinar sins ad laga tolvu og aetlar ad hitta okkur eftir halftima klukkutima. Strakurinn aetlar med okkur i sight-seeing!! I gaer forum vid i a hid stormerkilega safn Musée d'Orsay, Alfrun for reyndar ekki. Hun for i gongutur og skodadi mannlifid. Eftir 3 tima a thessu blessada safni var eg farin ad fa nog, og stod vid glugga og reyndi ad finna Effelturninn. Hann fannst eftir mikla leit, thegar ut var komid (eg hefdi haldid ad hann vaeri meira aberandi?!). Vid fengum okkur ad borda, Sigga fekk rosalegan hausverk og for heim med Alfrunu, en Yrsa kom med okkur Elsu til Michaels. Vid forum og keyptum sma bjor i handy og satum her og deildum tonlist fram eftir kvoldi. Tha logdum vid leid okkar nidur i bae, a bar sem svipar til Sikrùss! Mjog gaman. I kvold aetlum vid a tonleika med bandinu eNola - en thad eru vinir Michaels. Theim svipar mjog til Leaves. Gaman af thvi.
Her er lifid, ekki litid gaman ad eyda saeldartima med vinum sinum! Svo vona eg bara ad thaer lati verda af thvi ad koma til min og fara a Coldplay tonleika 3. november! Thad vaeri frabaert!!
Jaeja, aetla ad fara i sturtu. Hafid thad gott i kuldanum heima.
Bjorg


föstudagur, september 27, 2002

Godan daginn gott folk. Aetla ekki ad hafa tetta langt ut af asnalegum stofum! kom i gaer og hitti stelpurnar. Alfrun og Yrsa og Sigga gista a hoteli, en eg er med Elsu hja Michael vini hennar. hann a pinulitla en langsaetustu IKEA ibud sem eg hef sed! Vill allt fyrir okkur gera, og lanar okkur rumid sitt!
jaeja, eg aetla ad fara og sja hvort eg eigi pening....
Parisarkvedjur og kossar, Bjorg


miðvikudagur, september 25, 2002

Bonjour! Nú er ástæða til að æfa sig örlítið í frönkunni (reyndar ekki mikið að æfa...!) því Brusselfarinn gerist Parísarfari á morgun. Svolítið stuttur fyrirvari, sem gerir ferðina enn meira spennandi fyrir vikið. Að venju hef ég minn háttinn á, og þegar sólarhringur er til stefnu er ég komin með vegabréf (ótrúlegt en satt!), en vantar debetkort (næ í það á eftir) og farseðil og gistingu. Seðlinum bjarga ég sjálf, en ég treysti á samferðakonur mínar, þær Siggu Toll og Yrsu og Elsu Maríu og Álfrúnu að bjarga gistingunni, eins og þær hafa lofað!
Síðast en ekki síst þarf ég svo að klára tvö eða þrjú verkefni fyrir skólann. Mín fer létt með það....
Veðurspáin er reyndar ekki mjög hugguleg fyrir París, vott á morgun og sunnudag, en skýjað á köflum föstudag og laugardag. Ég segi nú bara "enginn er verri þótt hann vökni" því "fjarlægðin gerir fjöllin blá (og langt til Húsavíkur)".
("vil dú sínge hallelúja, marse djúbelín" "er þetta alveg örugglega þýska?" "jájá, þetta er þýska" "jæja þá; vil dú sínge hallelúja, marse djúbelín? -gúden abend, æne slafen, gamla skútu-kellingin!")
Hahahaha, þetta var fyndið.
P.s. þið sem föttuðuð þetta ekki eruð augljóslega mjög ómenningarlega sinnuð og hafið ekki alist upp í Hlaðhömrum 5.
Bon voyage


þriðjudagur, september 24, 2002

Nehei! Nú blöskrar mér! Þar sem ég er á góðri leið með að verða mikill jazz-unnandi (enda staðsett í borg teiknimyndanna, súkkulaðsins og, síðast en ekki síst, jazzins) var ég ekki lengi að skoða nánar Reykjavík Jazz Festival. Það sem kom mér hinsvegar heldur betur á óvart er að þar spila samtals 55 listamenn! Jábbs, 55 listamenn. Það þykir mér mjög athyglisvert. (En þið eruð líklegast ekki farin að átta ykkur á því enn.) Og þar sem þið gætuð verið að hugsa með ykkur: "Æi Björg, hvað er það svona merkilegt?" skulum við skoða þetta aðeins nánar:
*Af þessum 55 listamönnum bera (eftir því sem ég tel best) 42 íslenskt nafn en 13 erlent. Athugið, þeir gætu þó hafa verið búsettir á Íslandi í fjöldamörg ár, sbr. Dan Cassidy. (Athugið enn og aftur, við erum ekki komin að því sem er merkilegt. Þetta var í raun bara upphitun. Hinsvegar er mjög gaman af því að mikið sé af listafólki á landinu... eða hvað?!)
*Af þessum 55 listamönnum (eða á ég að segja listafólki?) er ég einstaklega stolt af þrem. Fyrst ber að nefna Kristjönu Stefánsdóttur og Sunnu Gunnlaugsdóttur fyrir að vera einu konurnar af þeim 55 listaMÖNNUM sem stíga á stokk dagana 1-6 október þegar hátíðin er haldin. Síðast en ekki síst er ég mjög stolt af vini mínum Kára Hólmari Ragnarssyni sem spilar á básúnu með Kúbanska, laugardaginn 5. október 2002 á Kaffi Reykjavík klukkan 22:00.

Til hamingju Íslendingar, fyrir að eiga svona glæsilegan hóp listaMANNA !


P.s. Ef einhver ykkar veit hvað Kúbanska er, þá má sá og hinn sami gjarnan láta mig vita. E-mailið mitt er hippi_i_brussel@hotmail.com Takk.



mánudagur, september 23, 2002

Oh, það er svo mikið rok. Ég nenni ekki út. Ég er að pæla í að ná ekkert í krakkana í dag. Þau geta bara verið í skólanum. Ég er viss um að þau hefðu gaman af því. Þau fengju allavega draum sinn uppfylltann; ég væki þau ekki í fyrramálið. Og sjálf fengi ég að sofa út fyrst ég þyrfti ekki að keyra þau. Frábært. Er ekki bara hægt að hafa þetta svona á hverjum degi?

Neinei, ég segi svona. Mömmu og pabba og Ingvari og Guðna Páli fannst víst voða gaman yfir Grænlandi. Eins gott að þau eru ekki flughrædd!! Hahahahaha
Sjálfri fannst mér alveg ágætt í bænum með Camillu og vinkonu hennar sem ég man ekki hvað heitir. Sem er ekki gott.

En já, Björg alltaf bjartsýn! Ég ætla að skella mér í bankann og reyna að fá péning og sjá svo til hvort ég fari og fái mér að borða...

merci et au revoir


sunnudagur, september 22, 2002

Hér á Berensheide er mjög mikil þögn. Ég vaknaði í morgun og áttaði mig ekki alveg á þessu. Gekk um húsið, jú fjölskyldan var heima. Hvað gat gat þetta verið?! Ég var farin að hafa áhyggjur af þessu - hvort ég væri að fara yfir um! Pældi aðeins meir í þessu. Hafði þetta bakvið eyrað. Fór upp til Röggu og Valda þar sem við spáðum í deginum. Og það var ekki fyrren að við veltum okkur fyrir því hvort það væri nokkuð markaður - fyrst allir væru á bílum - að ég fór að sjá hlutina réttu ljósi. Auðvitað! Bíllausi dagurinn er í dag.
Ég var nú búin að lýsa smá svartsýni yfir þessu - og geri reyndar enn, því hvernig verður umferðin þegar loks má keyra og allir að koma úr helgarfríi?! - en það verður að segjast eins og er að þögnin, kyrrðin, er yndisleg. Er á meðan er.