--> Björg bullar
<< current
Skoða gestabókina
Nafn :

Netfang :

Heimsíða :

Skilaboð :
This page is powered by Blogger. Isn't yours?

laugardagur, október 05, 2002

Nammi.....!!! Ég verð víst að viðurkenna að ég er nokkuð fyrir nammi gefin. Svona smá. Eins og þið hafið ef til vill lesið er allt mitt íslenska nammi búið. Ég skoðaði nammi.is , en það var ekkert spennandi. Þau selja ekki möndlur.
Þetta blogg er samt ekki sos kall á meira! Í dag uppgötvaði ég neflilega nokkuð....! :)
Í dag fór ég með krökkunum í Íslenskuskólann. Ég var ekki í skólanum, ég fylgdi þeim og fór svo með Röggu að versla. Íslenskuskólinn er í Skandinavíska skólanum í Waterloo. Og rétt hjá skólanum er skandinavísk búð!!! Þau selja reyndar ekkert íslenskt nammi (?!?! vita þau ekki að það er besta nammi sem fæst í heimi?!) en.... þau selja Haribo, saltpillur, tyrkisk peber! og svona fíla-lakkríslengjur! og fullt annað sem ég náði ekki að skoða! en ég keypti sterkan brjóstsykur og fílinn og svo auðvitað saltpillur, uppáhalds nammið (útlenska, það er að segja!) vei....
En, af íslenska namminu er það að segja að ég er að passa hjá Hauki og Stínu, og þau gáfu mér íslenskt nammi. Súkkulaðihjúpaðan lakkrís, súkkulaðirúsínur, ofl. ofl.
Takk Haukur og Stína. Takk skandinavíska búðin. Takk pabbi og María fyrir að vera að senda mér meira nammi.
ummm.... nammigott!


Mikið elska ég það að vera af tölvuvæddu fólki komin! Þið vitið, það er svo gott að geta beðið mömmu sína um slóðina af heimasíðu Arnars Pálma (Jónu Bjargar og Kristjánssyni) og fá skothelt svar: rintiss@islandia.is Og þetta fattaði hún alveg sjálf !! :)
En jæja, ég vann mig í gegnum upplýsingarnar og fann heimasíðuna. Þetta er svo myndarlegur drengur. Sver sig í ættina! Og Hugrún Lív. Draumur sérhvers manns.
(Hérna ætlaði ég að setja inn mynd af þeim, en vegna þess að ég er af svo góðu fólki komin, reyndist mér það ómögulegt!)
Nú þvælast um í hausi mínum endalausar hugmyndir um hvað ég eigi að gera í vetrarfríinu, sem stendur frá 28. okt - 1. nóv (að ég held). Ragga og Valdi vilja að ég fái smá frí frá fjölskyldunni og heimsæki ættingja. "Bentu á þann sem að þér þykir bestur". Ég er mjög svo sammála þessari hugmynd. Þetta á samt allt eftir að koma í ljós. Ég veit það bara að ég ætla að reyna að ferðast sem mest á meðan ég er hérna. Ég borgaði € 82 (6970 kr.) fyrir ferðina til Parísar og til baka. Og það var ekki youth far. Youth farið kostar € 54 (4590 kr.) en þá verður að bóka með minnst mánaðar fyrirvara. Þetta er ekki neittneitt. Strax eftir áramót ætla ég að tékka á vinnum heima, og sjá svo til hversu mikið ég ferðast eftir að ég hætti hér. Ég veit reyndar ekkert hvenær það verður! Sjáum til...
Ég spurði móður mína hvernig henni litist á að ég er stundum kölluð Bibba. Henni leist ekkert á það, sagði að Guðbjörg frænka hefði reynt einusinni, en það væri bara til ein Bibba, og ein Bó - og hún ætti þær báðar!! Þetta á svosum ekki að verða að vana. Íslendingarnir kalla mig Björgu. Hinsvegar á fólk af erlendu bergi brotnu erfiðara með þennan framburð. Japönsku og amerísku mömmurnar.....?! Þær mega kalla mig Bibbu. "Blgffff? / Bröfffggg? / what?! / exscuse me, what did you say?! / is that really your name?; how do you pronounse it? / Bjjjooork? / Wow, I won´t remember that!"
"You can just call me Bibba"



miðvikudagur, október 02, 2002

vei!!! nú get ég tekið fleiri.... og þið fáið að fylgjast með!!!

The Completely Pointless Personality Quiz
The Completely Pointless Personality Quiz


ha?!


discover what candy you are @ stvlive.com


aiit...


find your inner PIE @ stvlive.com


....like a warm apple pie....


Green



You are a very calm and contemplative person. Others are drawn to your peaceful, nurturing nature.




Find out your color at Stvlive.com!






Jæja, nú fáið þið að fylgjast með tilraununum... ég að setja flippið inn á síðuna...





Which flock do you follow?

this quiz was made by alanna



virkaði þetta?


Ahhhh.... ætli það sé ekki kominn tími fyrir langt blogg?
Ég talaði við ömmu Bibbu áðan. Mikið sakna ég ömmu!! Þeir sem þekkja mig smá, vita að ég er mikil ömmustelpa. Enda heiti ég í höfuðið á henni.
Ég þurfti ekki að keyra krakkana í morgun! Yesss....ég fékk að sofa út. Núna er ég að hlusta á Jeff Buckley sællar minningar - því í gærkveldi sat ég uppi og las Vogue og hlustaði á Alternative Nation á mtv. Ég hrökk við og fór að gráta þegar ég sá í fyrsta skipti myndband með Jeff Buckley. Það var svosum ekkert sérstakt, þannig. Það má líkja því við þessa blessuðu heimasíðu - ekkert sérstakt út á við, en tilgangur þess göfugur!
Í París hitti ég í fyrsta skipti einhvern sem hefur hlustað á Jeff Buckley - og fílar hann ekki. Það var Refurinn (Mikki refur - Michael/Mikael/Mickael/?!?!?!). Hann er líka aðeins meira fyrir Emilíönu Torr(tell)ini :)
Já... París. París var fín. Í París var gaman. París er falleg. Í París hitti ég skemmtilegt fólk. Í París var ég rænd. Í París varð ég ekki ástfangin (því var nú ver ;). Í París hlustaði ég á góða hljómveit sem heitir eNola. Það var gaman.
Jæja, ég hef verið eitthvað skrítin undanfarið. Best að fara að læra.
Sakna ykkar allra,
Bibba


mánudagur, september 30, 2002

Þetta er ég.
athugið sérstaklega vel byrjunina á annarri setningu!