--> Björg bullar
<< current
Skoða gestabókina
Nafn :

Netfang :

Heimsíða :

Skilaboð :
This page is powered by Blogger. Isn't yours?

laugardagur, október 12, 2002

Enn hefur enginn haft samband við mig um hvernig ég á að setja þennan teljara inn. Ég sé þrjár ástæður. a) enginn les þessa heimasíðu b) enginn kann að setja þetta inn c) botnleðja hafði rétt fyrir sér. Fólk er fífl. Ég veit ekki hvað af þessu er rétt, enda er enginn teljari kominn inn á síðuna og þarafleiðandi get ég ekki sannreynt a).
En jæja. Fjölskyldan horfir á landsleikinn Ísland Skotland. Hér er hann sýndur á þýskri sjónvarpsstöð. Fólkið í íslenskaskólanum hélt að það væri vegna þess að þá vantaði uppfyllingarefni. Ef það er rétt get ég ekki séð að það verði spennandi að horfa á þennan leik. Enda er Baggalútur búinn að segja til um úrslitin.
Sigur Rósar tónleikarnir voru... já. Þeir voru. Afþví að þeim verður ekki lýst í orðum. Sorrý.
Hinvegar var margt öðruvísi við þessa tónleika. Í fyrsta lagi voru þeir í Konunglega Sirkusnum (Cirque Royal). Svolíðið öðruvísi tónleikastaður en ég á að venjast. á mörgum hæðum. þverbröttum. Svo var hljóðkerfið öðruvísi stillt en vanalega. Ég veit ekki alveg hvort mér fannst það koma betur út. Ég held ekki. Söngurinn hans Jónsa var í algjöru aðalhlutverki. Ekki alveg málið held ég. Alls ekki það að hann hafi sungið illa. Ég held bara að söngurinn hefði notið sín betur í samræmi við hljóðfærin. Trommurnar hans Orra féllu dálítið í skuggann. Fengu bara að njóta sín stundum. Strengirnir (Amina Strings) voru hinsvegar mjög góðir. Betri en þegar ég heyrði í þeim síðast. Galdrastef á ströndum. Reyndar heyrðist einhverntíman bara ekkert í þeim. Þetta var það helsta. Svo var svolítið fyndið að fyrir framan mig sat Ingileif, mamma Gunnars Snorra sendiherra. Fyrir tónleikana var svo tekið fram á þrem tungumálum að allir ættu að slökkva á símunum og svo mætti ekki taka myndir og ekki reykja. Svo var bara brjáluð graslykt í kringum mig allan tímann. Mennirnir sem reyktu sátu fyrir framan tækni krúið. Eins gott að ég sá hverjir það voru. Annars hefði ég kannski farið að gruna grey konuna. Ég meina, hver veit. Hún var nógu rokkuð til að koma á tónleikana!
Tónleikarnir í heildina voru hinsvegar. Betri en ótrúlega góðir.
Eftir tónleikana sá ég myndarlegasta mann sem ég hef séð. Vá! Gaman að því.
Svo er ég hérna með rosalegt prógramm yfir alla tónleikana sem ég vil fara á. Það er eitthvað Jeff Buckley dæmi í gangi á miðvikudaginn. Ég skil ekki alveg frönskuna. Ekki heldur flæmskuna. En ég er alveg að pæla í að fara. Svo eru Doves 7. nóvember. Stanley Beckford frá Jamaica 11. nóvember. Enon (sem skartar henni stelpu úr Blonde Redhead) 12. nóvember. múm 13.nóvember (það er möst). Violent Femmes 23.nóvember. Ivan Paduart & Rik Margitza - Jazzlab Series 26. nóvember. Og ekki má gleyma JJ72 11. desember. ég er reyndar ekki alveg jafn viss um að ég fari á þá. Úfff... það er nóg að gera! Ég veit bara ekki alveg hvern ég á að sannfæra til að koma með mér. Bára og Solla aðhyllast ekki alveg sömu tónlistarstefnu og ég. Vissu til dæmis ekki alveg hver Lou Reed var. ekki heldur Jeff Buckley. úps.
Annars er það að frétta að litli bróðir er næstum því kominn með nafn. Það tilkynnist ekki hér. Og ég er byrjuð að hugsa um jólagjafir. Ekki það að mér leiðist....



föstudagur, október 11, 2002

oh, fjandans rugl, ég er að reyna að setja inn fríann teljara frá teljari.is nema ég kann það ekki!! Hjálp... getur einhver hjálpað mér?












fimmtudagur, október 10, 2002

- 75 dagar 2 klukkustundir og korter í jólin
- 45 dagar 1 klukkustund og 45 mínútur í afmælið mitt
- 44 dagar og 18 mínútur í afmælið hans Gumma pabba
- 38 dagar og 24 mínútur í afmælið hans Guðna Páls
- helgin byrjar á morgun
- 0 dagar 2 klukkustundir og 15 mínútur í Sigur-rósar tónleika

(p.s. Tímasetningarnar eru allar nokkurnveginn réttar. Allar reiknaðar út frá jólunum. Heimild: www.jol.is)


vúúps!! Ekki nóg með það að þessi blessaða heimasíða sé ljót (eins og hefur reyndar margoft komið fram. Raunar svo ljót að Mikael gretti sig þegar hann sá hana. Það finnst mér vera dónaskapur) heldur setti ég inn alveg rosalega villu í gær. Ég sagði að Mummi væri í háskóla í Boston. Það er álíka mikill sannleikur eins og að segja að ég sé óper í Finnlandi. Mummi er neflilega í háskóla í Minnesota. Eins og stendur réttilega stórum stöfum á hans heimasíðu. Sorrý Mummi.
Og svo má til gamans geta að Doktorinn var ekki í VegasT heldur bara Vegas.

Í dag ætla ég að vera dugleg að læra. Aida er að þrífa. Svo ætla ég kannski niður í bæ að kaupa mér einn hlut fyrir Sigur-rósar tónleikana sem eru í kvöld. Vei. Mér hlakkar svo til!


miðvikudagur, október 09, 2002

"Setberg vex á nóttunni" - Sigurjón Kjartansson.
Ég er að hlusta á útvarpið. Ég elska útvarpið. Ef einhver segir að íslenskt útvarp sé yfir höfuð lélegt á hann mér að mæta. Ég er reyndar ekki hrifin af öllum íslenskum útvarpsstöðvum, núna er ég í fyrsta skipti að hlusta á RadíóX, og er það nostalgía. Hinsvegar hlusta ég alltaf á Óla Palla, sem er (mér til mikillar gleði) tekinn við stjórnun þáttarins-sem-ég-man-ekki-hvað-heitir á Rás2 á morgnana. Gaman af því. Ég las það á heimasíðu Dr.Gunna að hann verður hjá Sigurjóni og Co.klukkan níu að íslenskum tíma á eftir. Þá er klukkan ellefu hjá mér. Samt breytist tíminn eftir nokkra daga. Þá verður auðveldara að lifa í takt við ykkur heima.

Þegar ég kem heim á morgnana, fæ ég mér morgunmat, og tek svo rúntinn. Rúntinn á internetinu. Ég byrja yfirleitt á Braga artí fartí, fer svo til Alberts sem er kærasti Bergþórs. Loka Alberti, fer svo til Mumma sem er í háskóla í Boston að læra sögu. Þú kemst held ég ekki hjá því að lesa það á annars ágætri síðu Mumma. Næstur á eftir Mumma er svo Skúli. Skúli er fínn strákur, en bloggar ekki alveg nógu oft. Síðast en ekki síst kíki ég svo á Dr.Gunna sem er alltaf hress og nývaknaður, nema hann sé nýkominn til landsins frá Vegast og þjáist af svefnleysi. Þá er hann hvorki hress (allavega ekki mjög hress) né nývaknaður.
Ef ég er í góðu skapi blogga ég svo sjálf, læri eða finn hlekki hjá þessum ágætu körlum yfir á eitthvað fólk sem ég þekki sjaldnast, en veit af.
Gaman af því.