--> Björg bullar
<< current
Skoða gestabókina
Nafn :

Netfang :

Heimsíða :

Skilaboð :
This page is powered by Blogger. Isn't yours?

fimmtudagur, október 24, 2002

Þessi fjöldi á teljaranum mínum kemur mér ferlega á óvart! hundraðogeitthvað heimsóknir á viku. Merci beaucoup et au revoir.

Ég rakst á lag með Leonice á netinu. Rosalega lélegt. Ekki datt mér að hún gæti gert léleg lög. Annars sakna ég þess að geta hlustað á hana á geisladisk. ég verð að kaupa 'love from overseas' þegar ég kem. Reyndar sakna ég þess meir að heyra Hildigunni og Mörtu taka Victor....
...memories...




miðvikudagur, október 23, 2002

Ég varð nokkuð glöð í gær þegar ég komst að því að lífræni strákurinn býr hérna rétt hjá mér. gamangaman.
Annars er ekkert nýtt að frétta... enn löt.

Oh, and Mikael. Yes your name is here often, I know. That´s because I´m keeping them updated about the new website. And you don´t have to hurry. I haven´t got the camera anyways... Sorry.

Spæjó.


þriðjudagur, október 22, 2002

ach... ég þoli ekki svona. í allan dag fannst mér ég hafa svo ótrúlega margt að segja hér en svo þegar ég sest niður og hef hugsað mér að hefja skriftir rís stífla á mettíma.
hvað gerði ég í dag? uhm já. ég var nýkomin heim þegar Elísabet kom, svo ég bauð henni í kaffi, og svo fórum við í bæinn. við löbbuðum allan gamla bæinn. það var mjög gaman. Hún býr í rosalegu hverfi þar sem allt er morandi í annars-handar búðum, og svona antík og sixtís-seventís húsgagnabúðum. og allskonar búðum. en ekki nýjum búðum. gamangaman. ég keypti mér bol. hann er allt of stór. úps. og svo komum við við á markaðnum á Place du Jeu de Balle. það er alltaf gaman. Elísabet keypti 4 postulínsbolla og held ég 6 eða 7 undirskálar á hvað, 8€. spottprís. með gulli og allt!
að lokum var komið að tilgangi ferðarinnar. enska bókabúðin. veiveivei. loksins get ég farið að lesa eitthvað almennilegt. (svona fyrir utan skóla...!)
svo náðum við í Kareni Eir, sem ég passaði á meðan Elísabet fór til tannlæknis. við náðum í Emmu saman. minnsta málið.

við Mikael erum að vinna í þessari heimasíðu. hún breytist þónokkuð eftir einhvura daga. slóðin verður að öllum líkindum hin sama. en ef þið hafið einhverjar skoðanir á því hvernig hún á að vera, látið mig þá vita. (hippi_i_brussel@hotmail.com) hér með tilkynnist þó að hún á að vera hin einfaldasta, því ég vill síður eyða frítíma Mikaels í eitthvað svona fyrir mig. þó hann segi að hann hafi gaman að því. (kjaftæði....!)

Cristiano kemur ekki að heimsækja mig í þetta skiptið. Hann er farinn aftur til Brasilíu. Hann var í matarboði hjá brasilískum vinum sínum tveim dögum eftir sýninguna (sem, by the way, tókst mjög vel!) og þeir voru ný sestir að borðum þegar faðir annars þeirra hringdi að heiman, því bróðir þessa vinar Cristianos lenti í bílslysi og dó. Cristiano fylgdi vini sínum því heim með flugi. Mjög sorglegt alltsaman.

Eftir þónokkuð Hendrix æði, hefur Jeff Buckley tekið yfirhöndina og í gær keypti ég mér glænýja diskinn 'songs to no one 1991-1992'. Og í dag keypti ég mér bókina 'dream brother' eftir David Browne. Á forsíðunni segir: 'the lives and music of jeff and tim buckley'. og 'As much poetry as biography' mojo ég er samt svolítið á móti því þegar fólk sogar í sig allan fróðleik sem það getur um einhverja tónlistarfólk sem það fílar. Allt í lagi að sjá svona hvenær það gaf út diska og af hverju og svona... en ekki alveg hvenær það fæddist og hvar og hverjum það giftist og hvar og hvenær það átti heima hvar, og fara svo og taka myndir af húsinu, ef tónlistarfólkið skyldi vera dáið. Og kannski gera úr því safn. þetta er víst kallað persónudýrkun. á móti persónudýrkun. en samt keypti ég bókina dream brother, sérstaklega afþví að ég fíla þá báða. þá feðga. og afþví að mér finnst þessi setning sem er aftan á bókinni mjög áhugaverð: "more than just a biography, Dream Brother is the story of what happens when The Buisness hooks up with The Artist, ultimately to neither´s benefit and sometimes with tragic consequences".

En núna ætla ég að ná mér í örlitla næringu. Þangað til síðar...


mánudagur, október 21, 2002

Við Mikael höfum komist að samkomulagi. Hann fær að gera nýja síðu. Og gestabók. Og það verða engir pastellitir. Fínt.


Við Mikael eigum í samningaviðræðum á msn-inu. Hann er að gera fyrir mig gestabók, og ekki nóg með það. Hann vill endilega gera nýja heimasíðu fyrir mig í þokkabót. Æi, er þessi svo slæm? Hann er auðvitað forritari/grafískur hönnuður eitthvað, svo....?!