--> Björg bullar
<< current
Skoða gestabókina
Nafn :

Netfang :

Heimsíða :

Skilaboð :
This page is powered by Blogger. Isn't yours?

laugardagur, nóvember 02, 2002

Næstum þvi komin heim ur ferðalaginu... i matarboði bara!
Ferðin mjög indæl, skrifa meir þegar heim er haldið.
Mjög svo hamingjusöm. Björg


fimmtudagur, október 31, 2002

...on the road again...


miðvikudagur, október 30, 2002

Poppöpp auglýsingar "I'm a woman seeking for man" "The world´s biggest casino" og "Need a new TV?" ættu að vera bannaðar, þær eru óþolandi. Já, næstum því jafn óþolandi eins og að fá tölvupóst sem segir að minn leynilegi heittelskaði sé fundinn, og bíði mín einhversstaðar í Nebraska?! Nei, hættu nú alveg...! Fyrst hann er svona mikið "fundinn" getur hann bara hundskast að skrifa í gestabókina eða hringja. Allavega að láta mig vita sjálfur! Hananú!


Baggalútur hefur án alls efa birt bestu grein um Sigur Rós síðan sveitin var stofnuð. Einnig eru á síðunni nokkuð góðir þrífarar.


Eitt sinn fyrir langa löngu bjó ung stúlka í borg langt, langt í burtu. Þegar gott var veður naut borgin sín til fullnustu. Fólk þyrptist út á götur; talaði saman, reifst og skammaðist, kysstist og hló. Stúlkur gutu augum að strákunum, sem þorðu ekkert að gera í málunum.
En... þegar vont var veður hengu allir inni. Það var sem grárri svefndulu hefði verið kastað yfir þessa fjarlægu borg. Fólkið svaf til hádegis og fór ekki í vinnu, heldur hekk inni hjá sér og glápti á sjónvarpið. Að sjálfsögðu var dagskráin sú sama og daginn áður, því það var eins með fólkið sem vann hjá sjónvarpinu; það var líka hrætt við regnið. "Hrætt við regnið?!" hugsið þið nú með ykkur, en já. Í borginni fjarlægu var börnunum sögð saga. Þjóðsaga.
Á hól (engin voru fjöllin, því landið var svo flatt) rétt fyrir utan borgina bjó norn....

(Framhald síðar, því ég veit ekkert hvert ég á að fara með þessa norn! Hún kemur þó sennilega til með að tengjast hrekkjavöku á einhvurn hátt, því hér er hún haldin hátíðleg.)

Héðan af Berentsheide er það að frétta að á morgun höldum við til suður Belgíu á nýja Volvoinum sem kom í hús í gær, eftir langa bið. So long Græna hætta!
Bleika reiðhjólið hefur fengið maka. Kærasti þess stendur hinumegin við gatnamótin, tígurlegur að sjá.
Hippinn þjáist af gríðarlegri ritstíflu, sem kemur sér mjög illa þegar kljást þarf við þó nokkurn skammt af enskum ljóðum.


mánudagur, október 28, 2002

Atburðir helgarinnar?
Jón Kristjánsson heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra kom ásamt konu sinni, Margréti og aðstoðarmanni og frú í mat á föstudagskvöldið. Ég fór með krakkana til Overijse að borða. Svo minglaði ég aðeins með stelpunum. Við fórum á The Wild Geese, þaðan á O´Reillys og svo á Celtica. Shit, hvað ég var ónýt. Illt í maganum, þreytt. Ekkert búin að drekka mikið. Algjörlega úr stuði. Fór þessvegna heim með leigubíl og skildi algjörlega frönsku leigubílstjórans. Gaman að því!
Á laugardagskvöldinu passaði ég litlu greyin (var það ekki bók?). Við tókum tvær dvd spólur. Eina teiknimynd. Vá hvað hún var góð. Í alvöru. Ég mæli með henni. Hún heitir Gloup! og er um börn sem verða að fiskum. Spennandi, skemmtileg og fín tónlist. Það að Emma litla hafi gaman að henni án þess að skilja tungumálið segir mikið!! Og svo tók ég Vanilla Sky. Það er alltaf svo ótrúlega góð tónlist í myndunum hans Cameron Crowes'. Ég veit samt ekki enn hvort mér fannst myndin góð eður ei. Jújú, hún var fín.
En gærkveldið var snilld! Mikael (yes... here´s your name again!) var búin að segja mér frá folk/jazz -laga söngkonu sem heitir Karen Ann, og hélt tónleika í Théâtre 140 í gærkveldi. Ég hafði mikið fyrir því að finna staðinn, svoltið úr leið svona.... og búin að ákveða að fara ein. En mundi svo eftir Ósk og bauð henni með. Ósk er hvað, þrjátíu og þriggja "au-pair" hjá Aðalsteini og Ágústu sem eru hinir Íslendingarnir hérna í Watermael-Boitsfort. Þau fara með okkur á skíði í febrúar. En já... við tókum metróinn og bússinn eins og Kári hafði sagt mér, og fundum Théâterið númer 140. En... miðinn var helst til of dýr fyrir fátæka námsmenn/au-paira. 25 €vrur. Shit! Fyrr má nú vera... geisladiskarnir sem ég hef verið að kaupa (sem eru ekki margir...!) kosta svona yfirleitt á milli 12-20 €vrur. Maður er ekkert að kaupa diska sem kosta meira en 22€. Þeir eru þá orðnir alveg spes... tvöfaldir eða eitthvað.
En já, svo við Ósk fórum bara á næsta pöbb, fengum okkur tvo öllara (leffe blonde) og sömu leið heim. Fínt kvöld. 20€ sparnaður.
( ) kemur út í dag. Ég ætla núna að ná í Jóhann, og kíkja í Woluwe-center og reyna að fá þetta albúm sem allir segja að sé snilld.
Og svo þarf ég að láta tékka á augunum mínum... þetta er að verða mjög dubius!
Síðar....



sunnudagur, október 27, 2002

Klukkan hefur verið færð aftur um einn klukkutíma. Það er ágætt.

Í dag er tuttugastiogsjöundi október, og nokkrar búðir byrjaðar að setja upp jólaskrautið. Ekki seinna vænna....!