--> Björg bullar
<< current
Skoða gestabókina
Nafn :

Netfang :

Heimsíða :

Skilaboð :
This page is powered by Blogger. Isn't yours?

laugardagur, nóvember 16, 2002

Þá er ég að skríða í háttinn, næstum búin að pakka, og legg af stað héðan um klukkan átta í fyrramálið. Ég geri ekki ráð fyrir að ég eigi eftir að blogga frá Antwerpen, svo ég bið ykkur vel að lifa þangað til ég læt heyra í mér á sunnudaginn.
Góða helgi!


föstudagur, nóvember 15, 2002

Ég gerði alveg stórmerkilega uppgötvun áðan! Þeir sömu sáu um raddsetningu á Heiðu og Snorkstelpunni, og Pétri og Múmínsnáðanum!!! Þessu hafði ég bara ekki gert mér grein fyrir, og þó eiga bæði Heiða (Heidi) á fjallinu með Pétri, afa, Pippa, snjóhvíti og öllum hinum... og allir múmínálfarnir (þar á meðal Snúður, Hemúllinn, Hattífattarnir og Mía litla), stórt stæði í mínu litla hjarta.
Jahá! og svo er óðríkur algaula bara í kvöld.


Þetta var upphaflega tölvupóstur sem Ragga sendi mér, en þar sem ég gat einhverra hluta vegna ekki sent hann frá mér aftur, setti ég hann hér. Ef þið viljið megið þið svara honum... ekkert nojið samt! En já, hér svara ég semsagt:

1. Hvernig býrð þú? ágætlega, þakka þér fyrir! jaá... í einbýlishúsi hér; ágætis herbergi. Í raðhúsi heima hjá mömmu, og svo á pabbi einbýlishús.

2. Hvaða bók ertu að lesa núna? úffúffúff... skólinn! En ég keypti mér bókina Dream Brother um daginn, lesturinn gengur bara ekki allt of vel.

3. Hvaða mynd er á músamottunni? engin mynd á mottunni.

4. Uppáhalds spil? *hugshugs* ....ég finnast spil greinilega ekki það skemmtileg! ég á ekkert uppáhalds.

5. Uppáhalds tímarit? tjah... Bulletin hér er fínasta blað. Og svo kemur það fyrir að ég kaupi mér tímarit, en ég á samt ekkert uppáhalds.

6. Uppáhalds ilmur? mandarínulykt, kanillykt, angan af nýslegnu grasi og vindlalyktin hennar ömmu.

7. Hræðilegasta tilfinning í heimi? Að standa sig ekki. eða bregðast trausti.

8. Hvað er það fyrsta sem þér kemur í hug þegar þú vaknar á morgnanna? Emma og Jóhann Páll.

9. Rússíbani, hræðilegur eða spennandi? spennandi

10. Hvað hringir síminn oft áður en þú svarar? eins sjaldan og hægt er!

11. Hvað eiga ókomnu börnin þín að heita? Jah, ég vona nú að ég fái ekki að ráða því algjörlega sjálf.... en ef ég á að svara þessari spurningu alveg óháð því hvort maður skíri í höfuðið á fjölskyldumeðlimum, og gef mér tvö börn, stelpu og strák. Þá fengju þau í dag nöfnin Baldur og Karlotta.

12. Uppáhalds matur? ósvaranlegt!

13. Súkkulaði eða vanilla? súkkulaði

14. Finnst þér gaman að keyra hratt? Já!

15. Sefur þú með tuskudýr? já. ég tók hundinn sem mamma saumaði handa mér og gaf mér fyrstu jólin mín, með mér hingað út.

16. Óveður, spennandi eða hræðilegt? aðeins meira spennandi en hræðilegt, held ég.

17. Í hvaða stjörnumerki ertu? Bogmaður (ekki bogAmaður!!)

18. Borðar þú stönglana af brokkóli? auðvitað! á maður bara að borða kornin?!

19. Ef þú mættir velja hárlit þinn hver væri hann? Rauður. ég væri eldrauðhærð.

20. Uppáhalds myndir? jæja....

21. Uppáhaldsbúð? Hljómalind, Gabriele, og Jeu du Balle.

22. Uppáhalds þættir? Monarch of the Glen, Absolutely Fabulous, Frasier.

23. Notarðu fingrasetninguna á lyklaborðinu? Jábbs.

24. Hvað er undir rúminu? Risastórt grænt skrímsli með fjögur augu og þrjú nef.

25. Uppáhalds talan þín? 5, 9 og 25


jahá! og þá er það komið! ég vona að þið hafið skemmt ykkur við þennan lestur.



fimmtudagur, nóvember 14, 2002

Þetta fékk ég að láni frá baggalúti. eða stal ég þessu kannski?, ég bað nefliega aldrei um leyfi. jæja....

liggur í götunni lávarður heims
alblóðugur, guð allra gangstétta
og geimdrottinn okkar dýra- og framtíðarlands
honum hlífir enginn verndarkraftur
heimskulegt að nennað snúa aftur

vertu blessuð, blessi þig
og Björk og Lindu Pé

heilsar varla drottningin
hún er svört og brún og blá
sumir eiga sorgir
- því sumir eiga þá

komdu sæll, ég óttast eigi
afl þitt né beltið gilt
taktu mig og berðu mig
í kássu - ef þú vilt

hvar hafa þessi límlausu veggspjöld lit sínum glatað?

snert hörpu mína hunangsborna dís
sem á brjóstin borið
blessuð hefur ís

það er kexverksmiðja að vestan
sem veit vel að ég er til
- og veit, að það er kona sem vindur þvottinn minn

ó hve lengi ég beið þín
lengi, lengi
það voru erfiðir tímar
og vatnið var alltof djúpt

faðir minn átti sér fegra föðurland síns föður
og mamma er svo breytt
enda brjáluð á vatninu og mér til hálfs.

heilsaðu engum meðan þú ert ber

saltlaus og ómstríð kleina
uppvís að léttri lund
rennur vandlega smurð niður vélinda kálfs
bráðum mun hún gerjast
og á bönunum ferðast
fimmtudagsmorgunstund

ertanna enn, eða hvað?


miðvikudagur, nóvember 13, 2002

ég fór að taka mig til á tónleikana. setti diskinn sem mikael bjó til handa mér á fóninn, og málaði á mér augun á milli þess sem ég pikkaði stutt skilaboð til bræðra minna. fór svo yfir kortið og metró-vísinn og áttaði mig á því hvert ég var að fara. ferðin þangað gekk snuðrulaust fyrir sig. galdurinn er bara sá að láta eins og maður hafi verið þarna þúsund sinnum áður - finna sér einhvern sem er líklegur til að vera fara í sömu átt og elta! fór inn. stóð og velti fólkinu fyrir mér. samdi nokkrar sögur og eins og tvö lög í kollinum, áður en ég gekk inn í salinn. ég man hvorug lögin lengur. fæ mér sæti við hlið flæmingja. sit og reyni að skilja þetta babbl sem einhverra hluta vegna er farið að hljóma svo kunnuglega. þá birtast fimm menn í einum enda sviðsins, þeim hluta sem ég sé betur. og svei mér þá, ef mér finnst einn þeirra ekki líkur benna, vini braga. já - og þessi gæti verið eiki. hmmm... eitthvað er þessi líka líkur sigtryggi, besta vini bigga pabba júlíu. heyrðu! og voru þessir ekki rúnk?! hahahahaha.... og ég sem hélt ég væri að fara að sjá múm!


Þessi dagur hefur verið - og á eftir að halda áfram að verða - mjög viðburðarríkur. Við Camilla hittumst í skólanum í dag, og ákváðum að fara að fá okkur morgunverð. Hann teygðist fram á hádegi. Það var nú gaman. Og svo lærði ég, og er að hætta því börnin fara að bíða mín í skólanum. Þaðan er ég að hugsa um að fara í Carrefour að kaupa mér hárlit. Það er orðið helst til litlaust grey stríið sem á höfði mínu liggur.
Og svo eru múm tónleikar í kvöld!
Ávallt brjálað að gera!!


þriðjudagur, nóvember 12, 2002

Það kemur fyrir að ég taki próf. Sjaldnast skólapróf, heldur meira svona sjálfspróf á netinu. Þau eru í langflestum tilvikum algjört kjaftæði! Núnú... ég er næstum alveg hætt þessu rugli, nema hvað að ég var að skoða jólabækurnar í ár hjá Eddu (miðlun og útgáfu) og sá þar próf um hvort maður væri sigurvegari. Mig grunar, og er nokkuð viss um, að þetta tengist bókinni sem kom út annað hvort í sumar eða síðustu jól og heitir einmitt Sigurvegarinn. En já, ég tók prófið og svaraði með bestu getu (sjáið til, þeir gefa bara upp svarmöguleika svo oft þarf maður að námunda sínar skoðanir að svarmöguleikunum...), og niðurstöðurnar voru þessar:
"Kæri þátttakandi þú hefur hlotið 20 stig.
Þú ert undirmálsmaður"
Edda, miðlun og útgáfa var semsagt að segja mér, að þar sem mér finnst að á hverjum degi eigi maður að vera góður við menn og dýr, að hamingjan sé fólgin í að lifa í sátt við sjálfan sig og aðra, og að það mikilvægasta í lífinu séu ekki völd og peningar, heldur fjölskyldan; þá sé ég undirmálsmaður. Jújú, það getur svosem vel verið að ég nái aldrei þeim stóra áfanga að verða forstjóri pharmaco og eignist ekki Ferrari. En ég verð að segja, að ég vill frekar að fólk hugsi: "Já Björg, hún er fín stelpa!" heldur en "Já Björg, hún á fullt af pening". Og ætli það sé ekki það sem geri mig að undirmálsmanni í samfélagi framapota...?


mánudagur, nóvember 11, 2002

Gullmoli dagsins í dag:
Jóhann Páll: Æi Björg... plíííss hjálpaðu mér að standa upp
Björg: Jóhann minn, nú er ég alveg að missa þolinmæðina
Jóhann Páll: Æi Björg...mjááá... ég er köttur.
Björg: Jóhann...
Jóhann Páll: Æ nei, ég er kettlingur.


sunnudagur, nóvember 10, 2002

þá-er-það-ákveðið
Við Camilla leggjum af stað til antwerpen, laugardagsmorguninn 16. nóvember. Og ég var að fá hostel. Held það geti verið að það sé skátahostel... en jæja. ég kann þó allavega flesta hnútana. Og konan hló að nafninu mínu. vúpsúpsídúps! En pottþétt fínasta hostel. og ekki neitt rosalega dýrt. 38,50€ fyrir okkur tvær nóttin. Sem eru tæplega þrjúþúsund og fimmhundruð krónur. sautjánhundruðkall á mann. jájá... það sleppur.

En fyrst... múm tónleikar þann þrettánda. Ég nennti ekki að fá neinn með mér. Ekkert of bjartsýn á að það tækist. Það verður fínt, hlakka til.

Og svo nálgast afmælin í fjöslkyldunni óðum....