--> Björg bullar
<< current
Skoða gestabókina
Nafn :

Netfang :

Heimsíða :

Skilaboð :
This page is powered by Blogger. Isn't yours?

fimmtudagur, nóvember 28, 2002

"Háttsettir spænskir embættismenn vísa því á bug að olía sé farin að leka á ný úr tönkum flaks olíuskipsins Prestige þar sem það liggur á hafsbotni á 4 km dýpi um 240 km undan norðvesturströnd Spánar. Talið er að um 60 þúsund lestir af olíu séu í flakinu. Sérfræðingar segja að olíubrák sem liggur yfir staðnum þar sem Prestige sökk sé frá eldsneyti skipsins sjálfs. Roselyne Bachelot, umhverfisráðherra Frakklands, fullyrti í gær að olía væri farin að leka úr lestum skipsins en Frakkar óttast mjög að olíu úr skipinu kunni að reka að ströndum landsins. Franski rannsóknarkafbáturinn Nautile er nú notaður til að skoða ástand flaksins. " segir mbl.is í fréttum í dag.
Ég þykist vita, að þó nágranni minn lesi ekki morgunblaðið, sé hann mjög ósammála.
Ég keyrði framhjá húsinu hans í gær (og í dag reyndar) og sá þá að hann hafði hengt risarisastóran hvítan fána utan á húsið sitt. Á hvíta fánann er málaður svartur fugl, og ef vel er að gáð lekur af honum olían. Á fánanum stendur líka "un oiseau nommé Prestige" (Fuglinn heitir Prestige). Í glugganum hanga svo fleiri fleiri áróðursblöð sem lýsa óánægju nágrannans með Prestige (og þá ekki fuglsins, heldur olíuskipsins).
Ég held með nágrannanum.
Kannski að ég taki mynd af fánanum og skipti honum út fyrir hjólið. Hver veit...
En það verður ekki fyrren ég kem heim frá; London.


Nóg að gera - enginn tími fyrir blogg, en hvað gerir Björg? Bloggar.

Jájá, Ragnheiður. Þú færð verðlaun (þrátt fyrir svindl!). Hvað það verður veit nú enginn, vandi er um slíkt að spá. En eitt er víst að alltaf verður, ákaflega gaman þá.


miðvikudagur, nóvember 27, 2002

Hvað voru þær eiginlega margar konurnar, sem voru frýðastar og vænstar sýnum?!


Ég þurfti að skafa af bílnum í morgun. Rúmlega 2° hiti! Bansettur kuldi!
London (lon og don) á föstudaginn. Fyndið, nú hef ég aldrei komið til Lundúna (svo ég muni allavega), og ber bara tvær óskir í brjósti mér. Mig langar til að standa á Piccadilly Circus (...rétt skrifað? ég er ekki viss.) og fara í SoHo. Annars held ég að familían sé komin með plan, og ég ætla bara að elta. Alltaf gaman að labba bara með og skoða borgina þannig. Upplifunin. Geri ráð fyrir að allt sé skreytt. Kannski maður kaupi bara jólagjafir?!

Ég sé að teljarinn minn fer að nálgast þúsundið. Ég ætla að biðja ykkur að fylgjast með, og þúsundasti gesturinn er vinsamlegast beðinn um að skrifa í Gestabókina.


þriðjudagur, nóvember 26, 2002

og þá er það framhaldið:
við fengum okkur kvöldverð á lókal-ferrarí-staðnum-"okkar", alltaf svo góður matur þar. namminamminamm... og þegar líða fór á kvöldð var ekki setið á nema þrem borðum. En þegar þjónninn var búinn að taka af borðunum þá var slökkt á ljósunum, og heppí börþdei laginu (sem hefur verið mitt uppáhalds afmælislag síðan ég hlustaði á það með míní-pops hér um árið...) skellt á fóninn, og Björg afmælisbarn með meiru fékk koss frá kokkunum og þjónunum. Gaman af því.
Við komum svo heim og fengum okkur hvítvín (...mín komin á aldur! hahahaha....) og osta og eitthvað, og töluðum lengi um allt milli stjarna og blóma.
En hér sit ég við tölvuna, og hef afrekað að stúta möndlupoka og risa þristi, sem ég fékk sent í pósti í dag. Takk elskurnar mínar!


sæl og blessuð.
já, ég átti alveg fínasta afmælisdag! Viljiði nákvæma dagskrá? ókei, svona var dagurinn semsagt í helstu dráttum:
Ég byrjaði (eins og venjulega) á að vekja börnin og voru þau einstaklega góð og dugleg að vakna! Eldaði handa þeim hafragraut og tók upp gjafirnar frá heimilisfólkinu; mýkstu náttföt í heimi og rosalega falleg kerti. Þar áður hafði ég fengið rauðan rosalega flottan leður bakpoka (jájá, það er ekkert farið illa með mann...)! Keyrði þau í ISB, og hitti Camillu sem gaf mér morgunmat/brunch/dinner í afmæligjöf á korti. Æðislegt! Fór svo heim og borðaði mjög góðan morgunmat með Valda og hjónunum sem eru hjá okkur í helgarheimsókn! Fór svo inn í herbergið og tók utan af gjöfunum sem hafa afrekað að liggja óhreifðar í gluggakistunni í næstum því viku! Guðni Páll prjónaði handa mér yndislega rauða lopavettlinga! Ingvar Kristinn gaf mér Kúbanska - geisladiskinn eftir Tómas R. Einarsson. Og mamma og pabbi gáfu mér ( ) með Sigur Rós. já, og svo fékk ég flísvettlinga frá Ömmu Bibbu. Öllum rosalega kært um hendur mínar og sál :)
Tók síðan við fallegum afmæliskveðjum í þó nokkuð miklu magni (Takk allir). Hrærði í súkkulaðiköku og bakaði, náði í krakkana og bauð Camillu, Alexander og Oscari í "afmælisboð". Út að borða á lókalstaðinn,

...vitiði, ég meika ekki meir. alveg að sofna! Ég lofa að ég klára söguna á morgun og að hún verður mjög skemmtileg! :)
Bonne nuit, jeaux anniversarie Björg (...var þetta rétt? kunnið þið eitthvað í frönsku?!)


sunnudagur, nóvember 24, 2002

Elsku pabbi! Til hamingju með afmælið! Svo eru bara tvö ár í sjötugsafmælið hjá okkur, ha?!
Dagurinn í dag var erfiður. Kannski ekki alveg sá allra erfiðasti, en það er ekkert grín að vera með þremur prinsessum (4, 6 & 7 ára) í tæpa tíu tíma! Neinei, því get ég sko lofað!
jæja, ég er svo uppgefin að ég hef ekki hugmynd um hvað ég ætlaði að segja. Bloggaði fyrir svona klukkutíma, en það hvarf. ææ... jæja. Við heyrumst bara á morgun.
Hafið það svo sannarlega gott þangað til.