--> Björg bullar
<< current
Skoða gestabókina
Nafn :

Netfang :

Heimsíða :

Skilaboð :
This page is powered by Blogger. Isn't yours?

þriðjudagur, desember 10, 2002

Hér er ég; á ísa köldu landi, eins og skáldið sagði einhverntíman. Og ekki bræðir það mitt litla hjarta að hugsa heim, líta á veðurspána næstu daga, og sjá að hitinn fer ekki einusinni niður fyirr frostmark hjá ykkur! Er ekki í lagi?! Ef það hefur einhverntíman verið ástæða til þess að hugsa um gróðurhúsaáhrif og hækkandi hitastig, þá er það núna! ...komið langt fram í desember!!!
Ég er hrædd um að ef fer sem horfir verðum við að skila Frónar-titlinum og krýna hann aðra þjóð (til dæmis Belgíu. Eða Noreg?). Móðirin er ef til vill hagsæld, en hrímhvíti liturinn fer að dökkna. Við getum þó huggað okkur við að eiga ennþá fornaldarfrægðina; frelsið og manndáðina beztu. Og þó að landið sé fagurt og frítt, þá verða fannhvítir jöklanna tindar ekki hvítir mikið lengur. En ætli himininn haldist ekki heiður og blár og hafið skínandi bjart, með komu sólarinnar?
Strendurnar upplitast og verða hvítar - Flugleiðir hætta að bjóða upp á One Night Stand til Íslands (sem tekur upp nafnið Hottland, samkvæmt tillögu frá forsætisráðherra, en hugmyndina átti Hannes Hólmsteinn nokkur Gissurarson sem sá nýja gróðaleið....) og fer að bjóða upp á sólarlandaferðir! "Is it cold? Come and warm up. Iceland?! No, Hottland! Hottlandair" Hótel Loftleiðir hættir að sérhæfa sig í bissnessköllum frá Bandaríkjunum, því skyndilega fyllast gangarnir af bleytu og hvítum sandi... hótelið er svo stutt frá Kóbakkabana strönd okkar Hottlendinga að það fyllist af tölvuuppum og hljómsveitaskríl.
Ríkisstjórnin hæstánægð, því með komu sólarinnar og ferðamannanna jókst góðærið í landinu. Landanum sjálfum nokk sama, ligeglad bara - enda búinn að sjá ljósið (a.k.a. sólina. og hún er heit!).

Pabbi, María, Þóra Björk og Jóhann Bjarkar; góða ferð til Flórída. Komið þið svo heim með nokkrar hugmyndir í farteskinu; því pabbi? ég flyt þér þær gleðifréttir að þú getur hætt að vinna eftir þrjú ár. Það vill neflilega svo til að konan þín á húsið við Kóbakkabana, og með komu batnandi veðurs verðið þið moldrík. Sko! ....þett'er alls ekki slæmt.

Húrra! Fyrir peningagerðamanninum. Takk Hannes (já, og p.s. þér tekst kannski / kannski ekki að gera Hottland að ríkasta landi í heimi, en það er þó allavega heitast!) ;)


hversu glöð get ég verið?


svona glöð


enginn grátur og gnýstan tanna á þessum bæ, því hér með kemst það til skila að Jóhann enskukennari er besta skinn. alveg frábær maður! gull af manni.

hæ hó og jibbí jei og jibbi jei, nema hei hei shí babbelúla she´s my baby.


mánudagur, desember 09, 2002

hmmm... nú skil ég ekki alveg. Jóhann svarar ekki í símann. Hvað getur þetta verið?
....ég reyni aftur. Og svo sendi ég honum e-mail. En ef það virkar ekki legst ég undir sæng og fer að gráta, því ef þetta reynist vera einhver misskilningur þá gefst ég upp. ég skil ekki misskilninga. hvernig tekst fólki að misskilja? ég er með þetta skrifað á blaði við hliðina á mér. Jóhann, munnlegt enskupróf. mánudaginn 9.des frá klukkan 20:00

merde. putain de bordel de merde.



jájá... kvöldmaturinn í gær var etinn rétt fyrir miðnætti, og var ekki jafn góður og sögur fara af. Hinsvegar nýttist hann mér vel við lestur næstu fjóra tímana, eða svo. Og þessvegna er ég einmitt þreytt núna. En það þýðir víst ekki neitt, því prófin eru ekki búin, nei aldeilis ekki! Munnlegt enskupróf á eftir, þá hringi ég í Jóhann enskukennara og les upp fyrir hann texta sem ég hefi valið mér að lesa.
jammogjá. En ég ætla þó að fara snemma að sofa í kvöld, svo ég vakni hress og kát í fyrramálið til lesturs íslensku.
Er ekki gott að reyna að vera glaður?


sunnudagur, desember 08, 2002

namminamm.... kvöldmatur dagsins í dag samanstóð af:
steiktu brauði með eggjarauðum, sinnepi og tómatsósu.

uppistaða dagsins í dag... of sein fyrir daginn, en ætti að nýtast manni við lestur næturinnar.