--> Björg bullar
<< current
Skoða gestabókina
Nafn :

Netfang :

Heimsíða :

Skilaboð :
This page is powered by Blogger. Isn't yours?

fimmtudagur, desember 19, 2002

Ég fékk e-mail frá henni Chantal í gær. Hana hitti ég í partýinu á laugardaginn; fín stelpa, og við ákváðum að halda sambandi. Hún vinnur hjá pias (play it again sam) - og hefur óbilandi áhuga á öllu sem viðkemur Íslandi, en þá sérstaklega hestum. Gaman að því.
Ég er næstum því búin að ljúka við allar jólagjafir (bara þessi erfiðu eftir...!!) enda ekki seinna vænna ef pakkarnir eiga að komast í flug með Jenný á morgun. Jenný - fín kona.
Noisedfiskurinn er opnaður! tjah... já. opnaður, en ekki mjög virkur. Hefur fengið nýtt útlit, en enn vantar allt inn. Ekki örvænta þó, því hann opnar 1. febrúar.
Fyrir ykkur sem ekki vita, er hávaðafiskurinn (noisedfisk), eins og ég kýs stundum að kalla hann, 'webzine' á netinu um skandinavíska tónlist, og stendur Mikaël fyrir öllusaman. Ég var boðin velkomin í hópinn um miðjan nóvembermánuð, og er fyrsta verkefnið að skrifa grein um íslensku hljómsveitina Ókind, sem gefur einmitt út sinn fyrsta geisladisk í byrjun febrúarmánaðar.
...allt að gerast...


miðvikudagur, desember 18, 2002

Þvílíkur dagur sem ég átti í dag! alveg frábær!
En ég hef ekki tíma til þes að segja frá honum núna... enda of upptekin við að gera nýjan böddsjett (hinn er í molum, og ég farin að verða hugsandi yfir öllu gulu miðunum....)


þriðjudagur, desember 17, 2002

Tumi er snillingur! Maður er ekki fyrr nýbúinn að rekast á hann á msn-inu, en hann er búinn að taka leiðindaborðann af fyrir mig. Frábært!

Svoltið þungur dagur á morgun. Kaupa restina af jólagjöfunum, og svo verða litlu jólin haldin hátíðleg hérna á Berensheide. Gaman að því.

En núna þarf ég nauðsynlega að fara að sofa. (asnalegt skrifelsi þetta!)



mánudagur, desember 16, 2002

Ágætis morgunn þetta. Svolítið grátt veður svona, rigning og skýjað, en ég mætti í nýju úlpunni minni í skólann í morgun og hitti Camillu. Við hlóum - þónokkuð mikið. Og svo heilsuðu kennaranemasætustrákarnir mér. hahaha; fyndið.

Faðir minn varð fertugur í gær. Ég hringdi ekki í hann, og þykir það leiðinlegt. En hann er jú einusinni í faðmi fjölskyldunnar á Flórída.... ég heyri í honum 22. des. Þá verður hann kominn heim. Til hamingju pabbi minn.


sunnudagur, desember 15, 2002

- ...jæja Björg, er þá ekki kominn tími til að blogga?
- ekki fyrst þú segir blogga.

Síðustu dagar hafa verið áhugaverðir. Ég víðsvegar um bæinn að reyna að finna jólagjafir... það tilkynnist hér með að ég sendi engin jólakort í ár, og er það vegna tíma- og peningaleysis.
En í gær fór ég í hás-partí. Það var gaman. Mjög gaman. Slóst í för með sænsku gellunum sem voru á leið til kunningja þeirra. Þeir eru allir tónlistarmenn, og gáfu mér geislaplötu. Mjög góða meira að segja. Jájá. Einn þeirra, hann Pierre held ég, sagði mér að hann væri í hljómsveit sem hefði einhverntíman túrað með Sigur Rós. Hvort þeir gefa ekki út hjá sama fyrirtæki og Godspeed You Black Emperor. Æ, ég man það ekki, en verst þykir mér að hafa ekki náð nafninu á hljómsveitinni.
Slæmt þegar þetta gerist; maður hittir svo fullt af nýju fólki, sem er allt mjög áhugavert, en maður nær einhvernveginn ekki öllu. og svo fara hlutirnir að renna saman.... merde.
En ég sló í gegn sem Íslendingur.

Mikið vantar mig lykil....