--> Björg bullar
<< current
Skoða gestabókina
Nafn :

Netfang :

Heimsíða :

Skilaboð :
This page is powered by Blogger. Isn't yours?

miðvikudagur, janúar 08, 2003

Ljósið

Kæru vinir! Ég hef séð ljósið.
Í fyrradag keypti ég mér sippuband, og sippaði því úti í morgun. Þetta sippuband er lausn allra minna aukakílóavandræða.... tjah, ef ekki bara alls! Svo fylgdi svona æfingaprógramm með; rosa sniðugt. Í dag notaði ég upphitunaræfingarnar - þvílíkt góðar, en ákvað að vera ekki að tímasetja mig svona í fyrstu... ég æfði samt helling, alveg þangað til að ég varð þreytt. Og orkan maður! VÁ.
Fyrstu tvær reglurnar við sipp eru:
1. Turn the music on ! Always skip to music ! Any music that will make you move and dance !
2. You will get the most out of your rope-jumping if you do it in the morning, making your energy flow all day long. {...}

....ókei ókei, þær eru ekki alveg í þessari röð í bæklingnum, en þetta skiptir miklu máli - og ég þori að veðja að þið nennnið ekki að lesa einhver ævingaprógrömm. En þetta finnst mér einna mest frábærast: "With a mere 15 minutes of daily skipping, you can get into shape in just a fortnight. And if you are dieting at the same time, you will be losing inches all the faster !"

OG þetta er skemmtilegt! ...afhverju datt mér þetta ekki í hug fyrr ?!!?


mánudagur, janúar 06, 2003

Topp Þrjú Listi Kvöldsins

#3: Þegar Jóhann Páll mætti í skónum mínum, með hálsmenið mitt, töskuna, bangsann og skíðalúffurnar inn í stofu og sagði: Halló, ég er Björg og ég kann margar sögur.
#2: Þegar við Emma unnum í mónópollí
#1: Þegar Þóra Björk kvaddi mig í símann með því að segja: Ég kem í heimsókn á morgun, ókei bæ (og skellti á).


jájá - ég er bara svona hress.

Það snjóaði í gær, og mér heyrðist á sumum kolklikkaðrugluðu mafíumæðrunum uppi í isb (ef þú ert ekki búin/nn að fatta hvað isb er by now; ættirðu að hugsa þinn gang) að Belgía sé eina landið í mið-evrópu þar sem ekki snjóar. Þær neituðu að trúa þeirri kenningu minni að ÍSland sé heitasta land evrópunnar um þessar mundir. Það snjóar í París, það var -23 stiga hiti hjá Camillu í Gothenburg, Svíþjóð (p.s. er Gothenburg það sama og Gautaborg?!), Kastrup í Köben var í vandræðum í allan dag vegna snjóþunga, allt á kafi í Ams(terdam) og svona get ég lengi talið. En þó: það snjóaði ÖRlítið hérna í gær. Það var meiraaðsegja alvöru snjór - hann festi bara ekki. Kom ekki einusinni hvít slikja... arg!

Allt ágætt að frétta bara, fyrir utan höfuðverk, eyrnaverk, hálsverk og mjaðmabakverk. Nei, ég kvarta ekki.





oh! ég var að sjá á noisedfisknum að Apparat Orgel Kvartettinn verður að spila í Groningen í Hollandi á föstudaginn á einhverju Eurosonic festivali. Groningen er bara næsti bær (ehm...land) við! Miðinn á festivalið kostar 15€ og lestarferðin eitthvað svipað. Hver vill koma með?


sunnudagur, janúar 05, 2003

Ég var rétt að enda við að klára Ódauðleikann -eftir Milan Kundera. Hún er frábær. Besta bók er ég hef lesið í lengri tíma. Takk Sunnulingurinn minn.
Um heimferðina er ekkert að segja hér á þessum miðli annað en að hún var... frábær? himnesk? ...ég á sveimérþá ekki orð. Og að það var mjög gaman að koma öllum á óvart. Hér fyrir neðan sést ég einmitt sörpræsa Júlíu minni. Það getur ekki verið að hún sé búin að sjá myndirnar - hún væri löngu búin að hóta mér lífláti fyrir þessa skemmtilegu mynd... já - þarna neðst niðri.
Svo er daglega rútínan bara að byrja aftur... allir hlakka voðalega til. Ekki ég reyndar. Alls ekki það að ég sé eitthvað ósátt við mína daga, alls ekki. En mér leiðast rútínur. Mér þætti vænst um að geta unnið vinnu sem ekki eins alla daga... þannig. Æi, bara. Annars veit ég ekki. Ég er bara svo hugsi eitthvað núna. Sumir vita - aðrir ekki. Allir haldi því fyrir sjálfa sig. takk.