--> Björg bullar
<< current
Skoða gestabókina
Nafn :

Netfang :

Heimsíða :

Skilaboð :
This page is powered by Blogger. Isn't yours?

laugardagur, janúar 18, 2003

Það er ekki oft sem maður pantar sér miða á tónleika með fimm mánaða fyrirvara. En það var ég einmitt að gera núna. Ég var að sjá til þess við Mikaël ófeminista að panta miða (...asnaleg setning!) á Bjarkar tónleika í París á þjóðhátíðardegi okkar Íslendinga !!!
Og hvað er ég þá? Góóóðð...


föstudagur, janúar 17, 2003

STOP United States of Aggression

Þegar ég var á gangi eftir verslanir í gær, var mér gefinn miði. Hann er til þess gerður að auglýsa mótmæli, vegna fyrirhuguðu stríði bandaríkjaforseta á írak.
"Manifestation - dimanche 19 janvier - 14h00 - Bruxelles Gare du Nord [wtc] - PAS DE GUERRE CONTRE L'IRAK"

"Eins og allir sem hafa í sér vott af skynsemi vita eru styrjaldir almennt haldnar óháð velfarnaði almennings í hverju landi fyrir sig. Allir sem lesið hafa blöðin vita að innrásin er liður í valdaleik, innrásaraðilum er nokk sama um heimsfrið, kjarnorkuvá eða lýðræði. Allir þeir sem deyja munu í þessu stríði deyja fyrir olíu. Olía er peningar og peningar eru völd. Völd gera samskipti fólks sjúk." (Siggi Pönk)

Ég er mikið að hugsa um að fara. Ég þori bara ekki að fara ein. Hvers vegna? Svæðið í kringum Gare du Nord er "hættulegt" - þar gengur maður ekki einn (sérstaklega ekki eiN) nema maður sé öllu kunnug(ur). Já - og svo veit maður aldrei hvað lögregluyfirvöldum í Belgíu skildi finnast um slík mótmæli, því þótt ég komi í friði veit ég ekki um aðra. Jæjajá... ég þarf að hugsa málið. Ætli Ósk sé friðarsinni sem fer í mótmælagöngur ?

Eftir því sem ég best fæ skilið standa þrír friðarsinnar fyrir þessum mótmælum. Þeir heimsóttu Írak í apríl síðastliðnum... ég ætla ekki að copy-a og paste-a meiru... þið getið lesið þetta á ensku hér

Ég get ekki látið mér standa á sama !



Stelpuskrif

Ég keypti mér gallabuxur í gær. Þær eru fínar alveg - ofboðslega venjulegar en skortir allan karakter. Þær eru eiginlega eins og gömlu gallabuxurnar mínar (það er að segja - sem ég átti á undan þeim sem eru ónýtar núna) með málningablettinum. Þegar ég horfi á nýju gallabuxurnar vildi ég óska þess að málningabletturinn væri á sínum stað. Hann var svo góður. fínt að krota á hann og svona. Fór alls ekki úr í þvotti. ahhh....
ég ætla að reyna að gera nýju gallabuxurnar eins góðar og hinar fyrri. Ég vona bara að þær víkki og linki.


fimmtudagur, janúar 16, 2003

Lesið síðuna hjá Sigga Pönk. Hann segir alveg satt, í dag og í gær þá sérstaklega.


miðvikudagur, janúar 15, 2003

svei mér þá ef ég er ekki bara svolítið hamingjusöm


þriðjudagur, janúar 14, 2003

Allt er blekking

(Ég veit ekki hvers vegna mér datt þetta í hug, í hugsunarþanki við lesur á LoveStar* eftir Andra Snæ.)

Það gerist örsjaldan (raunar aðeins brotabrota-sára-sjaldan) að einhver segi alveg nákvæmlega það sem honum finnst. Ég mundi til dæmis aldrei segja að ég hataði Britney Spears - því um leið og ég hugsa þetta: Ég hata Britney Spears; efast ég. Ég efast um að hún sé alslæm. Manneskjan syngi nú ekki það illa (ef hún gæti nú bara sungið almennileg lög), hún hljóti nú að vera ágætis grey. Maður getur ekki hatað einhvern sem er svo alveg ágætur bara. Að sama skapi get ég ekki sagt að ég sé grænmetisæta, þar sem ég bý ekki við að elda fyrir mig sjálf; er boðið í mat og vegna góðs uppeldis kæri ég mig ekki um og kann ekki við, að afþakka kjötsteik sem gestgjafinn hefur eytt tíma í að elda, og finnst góð. Ég mundi heldur aldrei segja að ég hati stærðfræði. Eða jú. Ég hata stærðfræði. En hún hlýtur samt að vera ágæt. Eða það finnst sumum.

En fyrst það gerist svona sjaldan að fólk segi alveg nákvæmlega það sem því finnst - lifum við þá ekki í blekkingu. Er ég í alvöru sæt í þessum bol? en Anna sagði það !? Vildi Anna kannski bara ekki særa mig? Látum okkur sjá.

Vinkonurnar Anna og Björg eru staddar í fataverslun. Björg er að máta bol, sem hún er ofboðslega hrifin af, en Önnu finnst hann ógeðslega ljótur.
Björg: Þetta er heví flottur bolur. Ég ætla að kaup'ann. Hvað finnst þér? (innskot: hvers vegna spyr Björg Önnu hvað henni finnst? Er Björg ekki búin að ákveða að kaupa bolinn?!)
Anna: Jú, hann fer þér mjög vel.

Athugið að Anna sagði ekkert um hvort bolurinn væri heví flottur eða ekki, enda finnst henni hann ljótur. En það vill hún ekki segja Björgu, þar sem hún gæti sært hana, enda Björg mjög viðkvæm þessa dagana eftir að hún missti vinnuna. En þá spyr ég, lifir Björg í blekkingu? Er bolurinn ljótur? Það hef ég ekki hugmybd um, en Björg var ánægð með bolinn; henni fannst hann heví flottur. Og Júlíu fannst hann fara henni vel. Þess vegna má Björg vera ánægð. En... hún lifir í þeirri blekkingu að Önnu finnist bolurinn flottur - og er því hissa á því að Anna vilji ekki fá hann lánaðan fyrir tónleikana, ...eins og hann fer vel við svarta pilsið!
(P.s. þessi líking á sér enga stoð í raunveruleikanum sem ég man eftir. Og Anna er tilbúinn karakter)


En stjórnmálin? Finnst Davíð Össur vera bjáni? Hefur Ingibjörg séð valdi beitt á ógeðfelldan hátt? Það getur vel verið - en ég trúi ekki að stjórnmálamenn segi nákvæmlega það sem þeim finnist. Þeir eiga alltaf einhverra hagsmuna að gæta.
Það eiga allir alltaf einhverra hagsmuna að gæta - hverjir sem þeir eru. Og þess vegna segir aldrei neinn alveg nákvæmlega það sem honum finnst. Þegar það gerist hinsvegar, alveg brotabrota örsjaldan, vekur það þvílíka athygli! Og það eru þær setningarnar sem við munum, orðrétt.

[Viljandi ákvað ég að lesa þennan "pistil" ekki yfir]



Hver verður númer 2003 ?!




sunnudagur, janúar 12, 2003

Ég fór í rosalegan verzlunarleiðangur í morgun. ("æææ" hugsar faðir minn nú. "Hvað keypti hún sér marga geisladiska í þetta skiptið?" "Hún var komin í bann !!!!" hvæsir þá móðir mín.) Ég fór með börnin á markaðinn í þeim tilgangi að gefa þeim örlítið sælgæti og kaupa mér fjögur greip, eða svo. Já - og leita eftir klútunum fyrir ömmu. Nema hvað - nammið keypti ég, sem og greipin. Ooog svo vínber, kirsuber, banana, kíví, ávöxtinn-sem-ég-hef-aldrei-smakkað-áður-og-veit-ekki-hvað-heitir-en-er-ágætur-þrátt-fyrir-ægilegt-útlit. Já, og mandarínur. Ég giska á... sirka 5 eða 6 kíló af ávöxtum. Fleira var það nú ekki. Hey djúd! auðvitað... og alveg ofboðslega þykka og góða heimabakaða brauðsneið með tómatstöppu, gommu af hvítlauk og osti... namminamm. Ég var stoppuð einusinni og spurð hvar ég fékk hana [brauðsneiðina]. Og Jóhann greyið heldur því fram að fólk hafi hlegið að honum þegar hann hélt á brauðsneiðinni fyrir mig (ég var aðeins of upptekin við kaup á ávöxtum...). Fyrst átti það að hafa litið á nammipokann hans, þá brauðsneiðina og svo loks skóna. Hahaha...
Jæja, The Gilmore Girls byrja á Kanaal 2 (held ég...) eftir tíu mínútur. Ég ætla því að hverfa á braut.

Mamma. Þú mátt mjög gjarnan fara að senda mér meil...
og þið hin auðvitað líka !

(og ekki móðgast yfir þessu "hvæsi" hérna áðan... ég veit vel að þú hvæsir aldrei)