--> Björg bullar
<< current
Skoða gestabókina
Nafn :

Netfang :

Heimsíða :

Skilaboð :
This page is powered by Blogger. Isn't yours?

föstudagur, janúar 24, 2003

Þegar að maður flytur (í styttri tíma eða lengri) til annars lands, er maður alls ókunnur um þá staði sem maður ætti að forðast. Ég komst að því í gær að Gare du Midi (sjá sögu hér að neðan) er einmitt helst sá staður Brussel, þar sem maður á ekki að standa einn í fjörutíu mínútur - sérstaklega ekki ef maður er stelpa.
Bulletin (blað Brusselinga með meiru) kynnir sjónvarpsþátt:
"Zuidstation (VTM, 20.40). The South Station in Brussels is a favourite haunt of Bulletin writers, you may have noticed. Every few weeks (it seems), we´re down there, reporting on the dreadful things that go on in that hot-bed of crime and insecurity, the gaping maw of all that´s worst about urban life, as it gulps down the unsuspecting trippers pouring off the Eurostar and the Thalys. (...) I think I prefer this version [sjónvarpsþáttur sem fjallar sólskynsfallega um suður stöðina], but I won´t be going down there without my team of bodyguards all the same"
Jahá! Og svona er maður staddur í bráðri lífshættu, án þess að vita af því (... eða svona)!


miðvikudagur, janúar 22, 2003

eðlilegt? ...ég held ekki!

Hvað haldið þið?! ég búin að hlakka til í... fleiri fleiri vikur! eftir að hitta Chantal. Nú, svo við erum í brjáluðu e-mail sambandi, og ákveðum að hittast í gær klukkan korter yfir sjö - á lestar (og metro) stöðinni Gare du Nord. Við útganginn hjá lest númer 20. Fínt er. Ég mæti þangað, fimm mínútum of sein reyndar - en það ætti ekki að saka.
Svo ég bíð úti hjá Gare du Nord í hópi ekki svo fagurra róna og annars skríls, í fjörutíu mínútur!! og aldrei sé ég Chantal á ljótum rauðum vólsvagen!!
Svo klukkan átta fer ég (enda orðin þreytt á þessum rónum sem standa fyrir framan mann, og bíða eftir sambandi. Og eins og maður horfir ekki á þá, eða segir eins fallega ruddalega og maður getur (á sinni takmörkuðu frönsku!) "vinsamelgast farðu í burtu".... jæja - þá þýðir það ekki alltaf).
Ég tek metró heim, skipti svo yfir á tramma og ákveð að koma við hjá Ósk; sem ég og geri og býður hún upp á bjór og endaði kvöldið því á besta veg.
Svo labbaði ég bara heim, og komst að því að internetið okkar er hætt að virka (frábært! og ég sem ætlaði að senda Chantal e-mail!!) og fór því í háttinn. Vakna klukkan fimm, þegar Ragga kemur niður til að athuga hvort ég sé ekki örugglega komin heim. Sæt.
....og þess vegna sit ég núna við tölvuna hjá Ósk - er búin að tala við Chantal (já! sem var víst á Gare du Nord frá sjö til tuttugu mínútur í átta - og missti af ballett tímanum !!!! merde...) og ætlaði að fara að skrifa eitthvað fallegt, eins og til dæmis að það sé haust, sumir ekki búnir að taka niður jólaljós (sem ég kann vel við) og þessa blessuðu heimspeki lífsins sem veltist um í kollinum á mér. Skúli - þú ert ekki einn.


mánudagur, janúar 20, 2003

Ofboðslega góða nótt öll saman.


sunnudagur, janúar 19, 2003

Man einhver eftir bókinni Dósastráknum ? Ég byrjaði að lesa hana áðan. Ég á 20 blaðsíður eftir. Mér finnst mamman kúl.
Annars hef ég mikið hugsað um allskyns útfæringar núna undanfarið. og ég er komin með lausnir. meira um þær síðar.