--> Björg bullar
<< current
Skoða gestabókina
Nafn :

Netfang :

Heimsíða :

Skilaboð :
This page is powered by Blogger. Isn't yours?

fimmtudagur, janúar 30, 2003

Ég er uppgefin!
Það tók mig hálftíma að labba heim úr DelHaze með 20 KÍLÓ af mat!!!! -úffúfffúffúffááááááúffúffúff- (p.s. yfirleitt tekur það 10 mín. að labba niðureftir)
Annars var dagurinn ágætur. Við Ósk fórum í göngutúr í skóginum í 2 1/2 tíma. Hann var ofboðslega fallegur - öll trén alhvít. Sem er ekki nógu gott fyrir sum þeirra - sem riðuðu afþví að snjórinn er svo þungur (eitt var að falli komið). Á leiðinni heim sáum við tré - sem var svoleiðis hlaðið af snjó að það lá í hálfboga, frá garðinum, yfir girðingu og á götuna! Toppgreinarnar lágu í alvöru á götunni - fáránlegt! Við reyndum að hrista snjóinn af því, en náðum honum ekki öllum, en það liftist þó það mikið að bílarnir áttu auðveldara með að keyra undir það!
Jæja, þar sem ég er ein í búinu ætla ég að raða #$%"($&!" matnum inn í ísskáp, undirbúa komu gestanna, og fara svo að horfa á Notting Hill. Eða Chocolate.


Á hálftíma varð allt hvítt í morgun !!
Og í fyrradag var mesta þrumuveður sem sögur fara af. Brusselingar hafa sjaldan vitað svona þrumur og eldingar OG SNJÓ. Merkilegt.
Mikið er þetta fallegt.


miðvikudagur, janúar 29, 2003

Og nú ætlar Björg að vera hress, enda kominn tími til. Skrítið - ég sem er búin að vera eldhress í marga daga; hryn svo svona líka niður þegar ég sest fyrir framan tölvuna og opna bloggið. Þá er maður líka oftast svefndrukkinn, sem bætir ekki andann.

Skólamálin eru alveg að gera sig! Ingimar í vma tók allt í einu upp að ákveða að ég ætlaði í ensku 403. Og það tók ekki nema sex e-mail að leiðrétta þann leiða misskilning. Sem er sérstaklega leiður, þar sem ég er búinn með áfangann. En, núna fer ég semsagt að byrja í íslensku hjá henni Guðlaugu, sem er fínasta kona. Kenndi mér í fyrra.
Og svo hringdi evrópski tungumálaskólinn - ég á semsagt ekki að byrja á morgun - heldur á fimmtudaginn eftir viku! Sem er ekki hægt afþví að Aida kemur á fimmtudögum.
Hvenær fer fólk að taka við sér?! "[þegar hlutirnir] ...eru farnir að hljóma sem þúsund raddir í hausnum á okkur, og farnir að bora gat á sálina." Svona leið mér í gær.

En ekki í dag! afþví að það er snjór úti!! Börnin á heimilinu (ég meðtalin) klæddu sig í nýju skíðafötin og hlupu út í snjókast og englagerð.

Í dag fór ég í höll hinna fögru lista. Ég væri að segja ykkur frá því.... ef mig langaði ekki svona mikið að hátta mig og skríða undir sæng!
Góða nótt.


þriðjudagur, janúar 28, 2003

Hvað er að verða um okkur?
Á meðan ég nýt þess að vera á píanótónleikum að hlusta á Brahms, er hús lagt við jörðu í Palestínu. Enginn lést - enda er það farið að skipta minstu máli. Þeir þjást mest sem eftir lifa.
George W Bush er skræfa sem trúir því að hann megi skjóta alla þá sem hann er hræddur við.
Og þeir þingmenn sem við kusum eru á góðri leið með að sökkva náttúruperlu. Og þessi náttúruperla gerir næstum allt annað en að þjóna augum okkar í leit að fegurð. Hún hýsir gróður, sem er vandfundinn - fugla sem treysta á svæðið fyrir varp - jökulár, og svona mætti lengi áfram telja!
Og hvað getum við gert?!

Í góðærinu á Íslandi höfum við alið upp kynslóð sem þekkir ekkert annað en að eiga allt. Á meðan að kynslóð er nú þegar vaxin úr grasi í Palestínu, sem þekkir ekkert annað en stríð og hörmungar. Hvorug þessara kynslóða kann að takast á við erfiðleika. Önnur þeirra kann að lifa með þeim.

Eða fer ég illa með staðhæfingar? Staðhæfi ég bara eitthvað út í loftið?

Ég veit það bara að við höfum það allt og gott, og nennum ekki að takast á við hlutina fyrr en þeir eru farnir að hljóma sem þúsund raddir í hausnum á okkur, og farnir að bora gat á sálina.