--> Björg bullar
<< current
Skoða gestabókina
Nafn :

Netfang :

Heimsíða :

Skilaboð :
This page is powered by Blogger. Isn't yours?

föstudagur, febrúar 21, 2003

Jújú - núna er maður bara á leiðinni á skíði ! Allt stefnir í að lagt verði af stað seinnipartinn og er ég búin að pakka (ótrúlegt en satt!) held ég öllu. En það er sko enginn smávegis viðbúnaður sem þarf í svona skíðaferð: Rauðir hlýjir sokkar (enda rauðsokka - hahaha ;), svartir hlýir sokkar (ef rauðu verða skítugir). Odlo-Tempur-síðu-nærfötin sem ég keypti í gær í intersport - sólgleraugu (ég tímdi ekki að fjárfesta í skíðagleraugum fyrir tæplega 3000 kr. ísl. rangt? - sjáum til), snjóbuxur, úlpa, tvennar flíspeysur, þröng húfa með endurskinsmerki (-já, sú hin sama og í skíðaferðinni í 10.bekk!), feykinóg af vettlingum, og nokkur hvunndagsföt. Skíði og klossar. Á ekki stafi. Skórnir hennar Maríu (á þá nú samt sjálf) - er það nóg ? Kemur í ljós. - Peningur og vegabréf (má ekki gleymast!)
Mummi hefur einhverjar áhyggjur af þessu hjá mér... jú - ég er að fara til Austurríkis, og ég er ekki búinn að þýða textann, enda gerði hann sjálfur alveg nógu vel - afhverju var hann [textinn] mér svona hugfanginn? Kannski afþví að þetta er svoltið flott lag með Blonde Redhead.....?

Tschüsh (eða hvernig sem þetta er skrifað!!) - sjáumst eftir rétt rúma viku; geri ekki ráð fyrir skrifum á meðan.


fimmtudagur, febrúar 20, 2003

Þetta er vinkona mín, hún Skördí. Hún er líka byrjuð að blogga.
Þetta er önnur vinkona mín, hún Marta smarta. Hún er líka byrjuð að blogga. (því miður fannst engin mynd af Mörtu).


þriðjudagur, febrúar 18, 2003

Jesús Kristur Bobbí !!! Doktorinn og Kalli linka báðir á þessa síðu ; enda er hún tær snilld !!!



sunnudagur, febrúar 16, 2003

Djöfuls.... (fyrirgefið orðbragðið!)
Ég er sammála Mörtu - tölvur eru verkfæri djöfulsins. Sérstaklega þegar þær setja ekki inn færslur !

En um helgina sagði mér maður að hann vildi gefa djöflinum sálu sína í skiptum fyrir mig. Mér þótti ekki við hæfi að biðja hann um að halda sálinni; hann var eitthvað svo einlægur greyið.