--> Björg bullar
<< current
Skoða gestabókina
Nafn :

Netfang :

Heimsíða :

Skilaboð :
This page is powered by Blogger. Isn't yours?

laugardagur, mars 08, 2003

Ég var að lesa gestabókina mína, svo hér koma nokkur svör:
Já SkördíBörd, þetta er alveg dagsatt, ekta ritgerð úr 7.bekk Grandaskóla. Fann hana þegar ég leitaði að sjálfri mér á Google.
Takk Ragnheiður - ég er líka með svolítið handa þér! Björg Þórsdóttir - Ber..... Æi, ég kann ekki við þetta, ég sendi þér restina á e-maili!

Annars verð ég nú bara að segja að ég er heldur ósátt við að níður minn um Braga greyið hefur ekki hlotið neina athygli, og ég þoli ekki lengur að hafa verið svona vond. Ég viðurkenni semsagt heilshugar að þetta var allt bara djók, Bragi er æði, og þetta var bara öskur fyrir athygli, til þess að komast inn á múg-listann hans.
Ofboðslega virðist ég eitthvað sorgleg.... leita að mér á Google, og geri ömurlega tilraun til þess að fá link. Æææ....

En það er helst að frétta að ég er ofboðslega þreytt, enda klukkan hálffjögur að nóttu til, ég var að koma heim frá Terejas/Tereas/eittthvað ! En hún varð tvítug. Til hamingju með afmælið. Við enduðum tvær á hörkuspjalli, með kött við hvora hlið og hund við fætur.

Kannski að þið heyrið betur í mér seinna - já, ég held það sé best.
Bonne nuit.

P.s. ég er ofboðslega stolt! Ég er farin að geta bjargað mér alveg á frönsku! Vei! Eins og á pósthúsinu í dag, strákurinn talaði og talaði og ég skildi alveg hvað hann meinti. Og í leigubílnum áðan - Nó Problemm, ....For Jhon Boblemm....?


miðvikudagur, mars 05, 2003

Í 7. bekk í Grandaskóla er skörp stelpa sem heitir Gyða Björg Þórsdóttir. Hún var að skrifa ritgerð um Belgíu, sem finna má hér.
Þetta finnst mér best;

Atvinna
Belgar eru oftast útivinnandi og vinna þeir þá á ýmsum stöðum.

og svo þetta líka.

Lífstíll
Fjölskylda
Meðal Belgísk fjölskylda á eitt eða tvö börn. Báðir foreldrarnir vinna úti. Heima skipta þau með sér húsverkunum en konur bera mesta ábyrgð á þeim og sjá um börnin. Ung gift börn í Flanders lifa sjaldan hjá foreldrum sínum, nema í héruðum þar sem fjölskyldurnareiga búgarða. Helgidagar og sunnudagareru oft fjölskyldudagar. Í gamla daga átti átti stórfjölskyldan oft heima í sama húsi en í dag ekki lengur, þó þau eigi oft í sama bæ eða borg. Í rauninni er fólkfrekar bundiðátthögum sínum og fólk býr nálækt æskustöðum sínum. Eldra fólki er yfirleitt sýnd virðing. Langar trúlofanir, svo og óvígð sambúð fyrir eða í stað giftingar eru afgangar. Einungis er löglegtað gifta sig hjáborgardómaraen margir fá þá líka kirkjulega vígslu.

Fæðuvenjur
Belgar borða fjölbreytt fæði m.a. svínakjöt, fugla , fiska og annað sjávarfang, ost, ávexti, geænmeti, brauð og súpur. Vín, bjór og sódavatn er oft borið fram með mat.
Belgar eru frægir fyrir sjávarfang (s.s. múslinga) súkkulaði, 300 feg af bjór , vöfflur og franskar, sem sagt er að Belgar hafi fundið upp og þeir borða með majones í stað tómatsósu.


Morgunmatuur er yfirleitt heitur drykkur með rúnstykki eða brauði með ávaxtamauki eða öðru áleggi. Miðdegisverður er mikill. Kvöldmatur er yfirleitt kl7 eða 8 e.h. Belgar stoltir af fjölbeyttum og góðum mat, frá innlendri matargerð innflufluttrar matargerða ????????????. Veitingahús bjóða oft upp á úrval alþjóðlegra rétta.

Félagslíf
Belgum finnst gaman að bjóða heim ættingjum og góðum vinum en önnur mannamót fara fram á opinberum stöðum, s.s. kaffihúsum og veitingahúsum.
Belgar heimsækja sjaldan sjaldan hver annan án þess að það væri rætt á undan eða allavega hringt á undan. Belgískir gestgjafar kunna að meta að fá smágjafir eða blóm (en ekki chrysanthemumsþví þær tengjast jarðaförum). Stundvísi er mikilvæg. Upp til sveila gæti verið viðeigandi að fara úr skónum áður en gengið er til stofu.

(Ég hélt textanum algjörlega óbreyttum - fyrir utan halla og dekkingu)







þriðjudagur, mars 04, 2003

Rétt á milli svefns og vöku, dreymdi mig (eða var það kannski ekki draumur ?) Rauðan fugl. Ég gat ekki hætt að hugsa um hann. Þetta var hálf-rauður fugl, með svartan gogg og svarta fætur - sem var dáinn. En samt fallega dáinn, ekki með snúinn háls. Og fallega opin augu. Mér fannst ég eiga að þekkja hann - en vissi samt ekkert hver hann var. Skrítið. Kannski þetta tengist einhverju öðru?

Ég fékk bólu um daginn, og hef ekki losnað við hana. Ekki bólu bólu, heldur þá bólu að vilja fara til Indlands. Allt í einu langar mig alveg ótrúlega mikið til Indlands! Að fara til Indlands þegar ég loksins klára skólann og vera þar í svona hálft ár, eitthvað svoleiðis. Þá yrði ég svona. Hahaha.




mánudagur, mars 03, 2003

Fríið var yndislegt! Ég hef sagt það þúsund sinnum, og ég segi það enn; ég held þetta sé besta frí sem ég hef komist í !! Pælið í því: Maður er að vakna fyrir og um klukkan átta, mættur í fjallið klukkan níu hálftíu, skíðar í hádegismat, skíðar til klukkan þrjú, nær í krakkana í skíðaskólann - þau ótrúlega ánægð, dugleg og hamingjusöm (sem og restin af liðinu), bjór, heim, matur, lestur - og maður steinsofnaður fyrir og um klukkan tíu! Vaknar svo hress og endurnærður, þrátt fyrir harðsperrur - og fær heilun hjá Guðrúnu við vöðvabólgu, hné- og bakmeiðslum!
Þetta er ótrúlegt! Ég hef nú oft verið með vöðvabólgu, en einn morguninn vaknaði ég með þvílíkan hausverk vinstra megin, (nei, ekki mígreni) - og rak hann beint til verkjarins í hálsinum (einnig vinstra megin) sem ég rak til axlanna. Nú, Guðrún (Elísabetarsystir) Þórðardóttir, "heilaði" og mér batnaði! Ég segi nú samt ekki alveg, en munurinn var þvílíkur! Valda er nærrumþví batnað í hnénu, sem er ótrúlegt! og ég held að Ragga hafi verið betri í bakinu sínu líka ! Töfraverk.

Nú er heim komið - og ég búin að vera að skoða hinar og þessar heimaíður, og ég verð nú bara að segja, að það er ein sem stendur niður úr !
Eins og hann Bragi Bergþórsson gat nú stundum verið skemmtilegur, þá hefur hann algjörlega misst sig! ætlar að vera eitthvað voðalega artí fartí, en er svo með ömurlegustu og ljótustu heimasíðu sem um getur !! ókei - hann er alveg 'obboslega sætur' á þessari mynd - en síðan er nú samt ljótari en heimasíðan hjá Blogger ! "Guð blessi freakin' artí fólk"?! Guð blessi allt fólk, segi ég nú bara - og verð nú bara að segja að ég hef ekki vanist því að fólk blóti og ávarpi Guð í sömu setningu! "Dýrka á þér tunguna maður" - ekki þegar þú talar svona, Bragi!
Já, hann Bragi er yfirborðskenndur og hrokafullur á allan hátt, og á ekki skilið alla þá virðingu sem hann virðist hafa í þessum svokallaða "bloggheimi". Ég meina - hver nennir að lesa færslur eins og þessa? pffhh!! Ekki ég. Ég er hætt að lesa Braga, þangað til að hann fer að vinna í sínum málum!

Góða nótt.