--> Björg bullar
<< current
Skoða gestabókina
Nafn :

Netfang :

Heimsíða :

Skilaboð :
This page is powered by Blogger. Isn't yours?

laugardagur, mars 22, 2003

Nú eru samkórfélagar mínir að vakna úr rotinu. Ég vona að þeir hafi allir með tölu skemmt sér vel í gærkveldi, og skálað fyrir mér - enda þemað: Björg í Brussel og Mummi í Minnesota.
Ég er hinsvegar heimavinnandi húsmóðir þessa helgina á meðan fólkið er í Lundúnaborg - og er einlæg von mín að þau skemmti sér vel. Þetta hefur gengið ljómandi vel; ekki nema tvær ferðir á sjúkrahúsið og sjö símtöl til dr. Gobbers.

Annars er nú ekkert of mikið að frétta. Kirsuberjatrén enn í blóma, verða fallegri með hverjum deginum og mér líður alltaf jafn vel við að horfa á þau. Samkunduhúsið hér á móti fyllist líka alltaf af fóki um helgar, sem er alltaf jafn gaman að fylgjast með.
Hverju er ég að ljúga! Víst eru fréttir, Sr. Sigurður Arnarson, uppáhalds presturinn minn og vinur, verður í Brussel á mánudaginn með sr. Karli Sigurbjörnssyni.
Annars spurði Emma mig um daginn hvenær ég ætlaði að gifta mig; ég þyrfti eiginlega að flýta mér svolítið sko, afþví að hún er ballerína þá ætlar hún að fá að verða brúðarmærin mín - sem er sjálfsagt, nema hvað að það var ekki jafn sjálfsagt að ég yrði brúðarmærin hennar - þótt ég hefði einusinni verið í ballett ! Hún þurfti að hugsa sig vandlega um, til að finna besta svarið og sagði svo: "Fyrirgefðu Björg, en það er eiginlega betra sko - afþví að ég er yngri en þú".

Annars er þetta næstumþví allt.
Handleggsbrotni undirleikarinn, hún amma mín á afmæli á mánudaginn - og ég hætti ekkert að vera sein með afmælisgjafir. Svona er þetta - ekki hægt !



þriðjudagur, mars 18, 2003

Blogger er búinn að vera í einhverju ólagi, svo hér kemur það sem ég ætlaði að setja inn á sunnudaginn!

bæði vondar og góðar fréttir héðan.
ég ætla að byrja á þeim vondu - afþví að þá getur maður alltaf huggað sig við þær góðu.

Ég fór að ná í filmurnar mínar í framköllun á föstudaginn, og hlakkaði ég ekkert lítið til. Tvær stórar filmur, stútfullar af fallegum myndum sem ég hafði lagt þvílíka vinnu í að taka, til að læra á myndavélina - ljósop, zoom og svo framvegis. Vetrarmyndirnar héðan, skíðamyndirnar, myndir af krökkunum, myndir af kirsuberjatrjánum, myndir af öllu fallegu húsunum og allt!
Það var ekkert á filmunum. Ekkert!! Hvert er heimurinn að fara?! Vélin tók myndir, pottþétt. Og ég spólaði alveg rétt til baka! Þær voru ekkert yfirlýstar eða undirlýstar - þær voru bara tómar!!!! Allar fallegu myndirnar mínar! *grátgrát*. Hvað á ég að gera?! Er vélin biluð? Hjálp!!!

En.
Sumarið er komið í Brussel, mér til mikillar ánægju, og í gær, laugardag, fórum við Camilla og Theres (loksins komin með hvernig maður á að skrifa nafnið hennar. Lesist samt meira, Terejas) niður í bæ, gamla bæinn. Lentum í lokun Jeu du Balle, mér til mikillar ánægju, og fékk ágætist eftirlýkingu af Converse skóm, háum, bleikum og svörtum, á aðeins 5€ Síðan fórum við í litla second-hand búð þar sem ég hef reyndar komið áður, og Camilla fann handa mér há-há rauðan flauelsjakka sem er sem sniðinn á mig, og kostaði hann 15€ og tvenna boli. Verslun dagisins: Skór, flauelsjakki og tvennir bolir = 28€ ( u.þ.b. 2400 krónur). Jájá, lífið getur líka verið ljúft. sérstaklega þegar maður situr með vinum sínum í sólinni svölu, með jarðarber í lok dags.
Og á pantaðan tíma til "top stylist" á Tony&Guy. jájá.

Og hér er svo linkur á hana Ragnheiði vinkonu mína, sem bjó til skemmtilega ástarsögu um daginn.

Það hatar enginn ástarstjörnu, sérstaklega ekki ef hún skín á bak við ský yfir Hraundranga. Og eins og Hákon sagði - verra ef það væri Esjan eða Akrafjall, og hvað þá Baula....