--> Björg bullar
<< current
Skoða gestabókina
Nafn :

Netfang :

Heimsíða :

Skilaboð :
This page is powered by Blogger. Isn't yours?

föstudagur, mars 28, 2003

Ég er að baka pizzusnúða. Mér líður eins og ég sé Amèlie, þegar hún bakaði plómukökuna, nema hvað að ég hef ekkert að gráta yfir. Yfir mig kom einhver undarlegur sálarfriður, og ætla ég ekki að eyða tíma og geðheilsu í að finna eitthvað til að drita músum yfir (þó úr nægu sé að velja - sé leitað nógu langt). Amèlie grét yfir strák - og þó engir séu strákarnir í Brussel, veit ég fyrir víst að lóurnar flytja ástina með sér til fósturjarðar minnar, strönd og ísa.
Mikið var þetta eitthvað undarlega orðað... nei, mér líður vel - og er jafnvel að hugsa um að hræra í eitthvað annað. Karamellur? Kanelsnúða? Súkkulaðiköku?

Apparat Organ Quartet tónleikarnir hurfu af netinu! Og jagúar tónleikarnir líka. Kannski er ég bara eitthvað biluð.... en ég ætla að fara!