--> Björg bullar
<< current
Skoða gestabókina
Nafn :

Netfang :

Heimsíða :

Skilaboð :
This page is powered by Blogger. Isn't yours?

föstudagur, apríl 04, 2003

Bjössi var að senda mér e-mail, hress sem aldrei fyrr, en staðfesti þær leiðinlegu fréttir að Apparat Organ Quartet verður alls ekki að spila á mánudaginn. Það er mjög leiðinegt. En ég er nú samt að hugsa um að fara og hlusta á Ed Harcourt. Bíddu, hvaða sænska stelpa ætlaði aftur.........?

En ég er að fara í bíó eftir smá stund, svona eftir að ég borða grænmetisbuffið mitt.

Setningu dagsins um daginn átti Jóhann Páll: Þessir bandaríkjamenn eru að fokka mér upp.
(Þessi setning var birt með hans leyfi. hananú)


fimmtudagur, apríl 03, 2003

Króníski magaverkurinn hefur ekki látið á sér bæra - heldur flaug með tunglinu til hennar Mörtu. Greyið hún. Og greyið ég, því magaverkirnir hurfu eftir yoga gærdagsins - en í staðinn komu þessir líka rosalegu strengir! Frá öxlum niður í kálfa, allar mögulegu leiðir. Og þegar yogakennarinn minn (sem ég held að sé frá Ísrael) hringdi í mig í morgun til að athuga hvort ég hefði gleymt poka af kökum hjá henni, rálagði hún mér að það væri gott að fara í heitt bað. Þá hugsaði ég alveg ofboðslega fallega til allra heitu pottanna þarna hjá ykkur á frónni.
En á mánudaginn hefi ég hugsað mér að fara á tónleika með sveitinni Apparat Organ Quartet, ekki leiðinlegt.
og nú ætla ég að sofa - eftir að ég horfi á þetta í þúsundasta skipti, og leiðist ekki. Skördí og Andri í söngvakeppninni. Gott mál.

P.s. Hæ Ágústa. Síminn er 02 660 7721 (og þetta tek ég út eftir tvo daga). Hefði auðvitað getað hringt, en mér finnst þetta bara aðeins of fyndið.



þriðjudagur, apríl 01, 2003

Maginn á mér er í hakki. Ég fæ magaverk í hvert sinn sem ég enda við að borða, og sé ekkert fyndið við þetta lengur, enda þurft að búa við þetta í fjóra daga. Nú verður hreinsað til í matarræðinu og leitað að rót vandans - og allt rautt kjöt fær að fjúka, og þá sérstaklega nautakjöt. Þó fyrr hefði mátt vera.
Maginn minn er samt ekki í jafn miklu hakki og þetta:
Maginn ᠭ鲠er �akki. ɧ f栭agaverk �vert sinn sem 駠enda vi�� bor��og s頥kkert fyndi����tta lengur, enda ��t a��a vi��tta �j��daga. N��r��hreinsa��l �atarr氩nu og leita�� r��andans - og allt rautt kj��沠a���� ޳ fyrr hef��ᴴ vera.


Alti Bollason hefur hafið skriftir að nýju, og er það mikið ánægjuefni. Vekur hann athygli á því að sumir bloggarar eru með eitthvað -dagsins. Ég ætla að setja inn ljóð dagsins.


Aldrei að víkja

Fram fram
aldrei
að víkja
sagði
konan
og
strauk
lærbrotið

fram fram
aldrei
að víkja
sagði
mölbrotið
skipið
í urðinni

fram fram
aldrei
að víkja
sagði
flugvélin
og splundraðist
á fjallinu

- Jónas Guðmundsson


sunnudagur, mars 30, 2003

Undirrituð fór í klippingu í gær - og er því með styttra hár en hinndaginn. Þar var hún oft og ákaft spurð af strák með grátt hár og í mjög flottum mikka mús bol, hvar hún hefði fengið háu bláuaðutanogguluaðinnan All Stars skóna sína. Ef hún hefði séð fram á að mikka mús bolurinn hefði farið sjálfri henni betur en stráknum með gráa hárið - þá hefði hún íhugað að bjóða honum upp á skipti, en hætt við. Annars ber að segja frá því, að stúklan með styttra hárið fann Tallstars shoes á Jeu du Balle, einnig háa, en svartaaðutanogbleikaaðinnan.

Pizzusnúðarnir þóttu góðir og sér bakarameistarinn mest eftir því að hafa ekki bakað fleiri.

Tónleikarnir eru á sínum stað - þó ekki á netinu, heldur á dagskrá Ancienne Belgique
Og svo mun íslensk hljómsveit eiga von á óvæntum glaðningi.