--> Björg bullar
<< current
Skoða gestabókina
Nafn :

Netfang :

Heimsíða :

Skilaboð :
This page is powered by Blogger. Isn't yours?

fimmtudagur, apríl 10, 2003

Og jæja þá - ég er komin heim frá New York. Ég ákvað að vera ekkert að eyða tímanum í eitthvað netkaffihúsadæmi, enda bara vitleysa. Og þessvegna kemur brotin ferðasaga hér:

Laugardagurinn 5. apríl
Lögðum af stað eldsnemma, og vorum lentar á Kennedy rétt fyrir hádegi. Beint upp á hótel, smá kría - og beint út. Hafið þið gert ykkur grein fyrir því hvað New York er stór?! Hún er allavega stærri en Brussel, svo mikið er víst.
Jæja, mission þessarar gönguferðar var að leita að fötum fyrir brúðkaupið. Eftir endalausa leit og margar margar spurningar fundum við loksins búðir. Ég fann svo að endingu æðislega fallegan svartan plein kjól sem er með vaffi í bakið. Notaðan. (Ég velti því svona aðeins fyrir mér hvort það væri nokkuð dónalegt að fara í notuðum svörtum kjól í brúðkaup hjá stórleikonu og tónlistarmanni - en ákvað að vera ekkert að pæla í því).
Jæja - út að borða og einn cosmo fyrir svefninn... enda þreyttar eftir langt flug og tímamismun.

Sunnudagurinn 6. apríl
Tvö orð:
- Myndavél
- Tveir jafnfljótir

Mánudagurinn 7. apríl
Stóri dagurinn - og rigning. Ég reyndi að hughreysta brúðina (eða hvað. Brúði? Þau giftu sig auðvitað 25.mars á eyju í Karabíahafinu, en hvað með það! Þetta var móttakan) og sagði henni að á Íslandi væri rigning á brúðkaupsdaginn fyrir mikilli frjósemi.
Þetta var eitt það merkilegasta sem ég hef gert! Þarna voru allavega fimmhundruð manns - leikstjórar, leikarar, tónlistarmenn, hönnuðir og ég veit ekki hvaðoghvað, og svo auðvitað ættmenni eins og við.
En þið verðið að fyrirgefa, ég má ekkert segja opinberlega hverjir voru þarna, hvernig Liv var klædd, hverjir spiluðu, hvað var borðað o.s.frv. (Það er þó e.t.v. hægt að lauma einhverju í gegnum e-mail - skrifið í gestabókina!).
En þetta var frábært, og segjum bara að... já.

Þriðjudagurinn 8.apríl
Fimm atriði:
- jarðarber
- myndavél
- tveir jafnfljótir.
- SoHo
- Ársbyrgðir af kínaskóm.

Miðvikudagurinn 9. apríl
Heimferðardagur. Fimm dagar í New York eru enganveginn nóg. En við gengum ótrúlega mikið, og sáum ótrúlega margt sem ég skrifa betur um seinna. Núna er ég hinsvegar að jafna mig á tímamismuninum!
Til hamingju Liv og Royston!