--> Björg bullar
<< current
Skoða gestabókina
Nafn :

Netfang :

Heimsíða :

Skilaboð :
This page is powered by Blogger. Isn't yours?

föstudagur, apríl 18, 2003

Nú er ég að reyna að klára þessa blessuðu ritgerð - á meðan ég hugsa um hvað ég á að taka með mér til Amsterdam - og kem mér í fönk fílinginn fyrir kvöldið. Með hljómsveitinni Nortón.
Einn meðlimur þeirrar hljómsveitar var að biðja mig um kveðju til Jagúar... spurning hvernig hún verður færð af hendi. Kannski með því að púa þá niður og heimta Nortón? Eða biðja um eitthvað lag með Nortón? ja, eða bara öskra: Nortón biður að heilsa! Eða ekki. Flýtið ykkur góðu gestir að fá góða hugmynd og setja á glænýja spjallkerfið hérna fyrir neðan textann, við hliðina á nafninu mínu og tímanum. Ég fann það alveg sjálf, en kom því ekki inn nema með hjálp. Að sjálfsögðu.....


fimmtudagur, apríl 17, 2003

Enn berast fréttir (enda brjálað að gera. Ég sit úti, með tölvuna fyrir framan mig, í skugganum undir sólhlífinni með tölvuna fyrir framan mig; skrifandi ritgerð).
Ég var semsagt að bóka far til Amsterdam á laugardagsmorguninn, þar sem ég ætla að vera hjá henni Guðrúnu Önnu frænku minni og manninum hennar Leon.
Svo vona ég að Benni og hans vinir láti heyra í sér líka, ef ég gæti hitt þau einhversstaðar. Það væri ekki leiðinlegt.
En þetta er allt að sinni, að ég held. Ég er að vona að ísbíllinn fari að sýna sig, ég heyrði í honum fyrir ekki svo löngu síðan....


Ó hvílík snilld!! Ég gleymdi víst í þessari færslu hér á undan að mynnast á, að við vinkonurnar gerðum stutt stopp á Ancienne Belgique, þar sem ég ætlaði að kaupa miða á Maceo Parker og.... Jagúar!
Sorrý - uppselt.
En þessi yndislega kona, sem mundi eftir mér sem stelpunni frá Íslandi sem hringdi til að athuga með Pappafrat og Jagúr - hringdi í mig áðan, til þessa að færa mér þær gleðifréttir, að ég er núna á gestalista fyrir tónleikana annaðkvöld.
Ekki svo mikið leiðinlegt


Tramminnn stoppar á Louise. Tilbúin endastöð. Klukkan er sex, og ég á eftir að koma mér Niður á The F-place. Sé næsta tramma, fæ far með honum á Sablon og ákveð að hlaupa þaðan. Kem auga á sex kunnuleg andlit, skelli kveðju á fólkið, og hleyp í strætó sem ég sé. Stoppar þægilega nálægt staðnum, svo ég rölti síðasta spölinn. Öll kaffihús full, þ.e.a.s. úti afþví að það er 25° hiti, í skugga. Komin, korteri of sein. Engin Therese. Kemur svosum ekkert á óvart, enda erum við vanar að vera þær seinu. Fæ mér bjór, og fylgist með götuflokknum sem heldur sig við kirkjuna, á meðan ég les kafla í íslenskubókinni minni. Fyndið með þennan götuhóp. Öll frekar tötraleg svona, eins og þau búi á götunni. Með nokkra hunda. Fyrst eru þau bara fimm sex, en allt í einu eru þau orðin að þyrpingu. Örugglega fimmtán. Kastandi logandi kyndlum, blásandi eld og fleiri kúnstir. Það er verið að taka við þau viðtal. Þetta er nú ekki í fyrsta skipti sem ég sé þau, enda er ég ekki á The F-place í fyrsta skipti heldur. Therese kemur. Við förum í R&V, í leit að sólgleraugum. Ég fjárfesti í tösku. Aftur á The F-place, í kvöldmat. Búið að loka eldhúsinu; hvað meinarðu? Annar bjór. Tek eftir því (og finnst svoltið kúnstugt) að allir í götuflokknum eiga gsm síma. Rosalega flotta gsm síma. Sá þau um daginn takandi myndir hvort af öðru á símana. Er þetta eitthvað flipp?
Leit að eldhúsi. Therese á "matarmiða" (erfitt að útskýra. Miðar sem fást einhversstaðar, kosta 2€ en gilda fyrir 6€, hver miði. svo er hægt að borga með þeim í búðum og á veitingastöðum). Förum á PickPack (eða hvað hann heitir), og eftir að allir sem vinna á The F-place eru búnir að droppa við, þá set ég fram þá kenningu að maðurinn í svarta flauelisjakkanum eigi báða staðina. Sú kenning fær góðan hljómgrunn. Fáum okkur Soupe du Jour og bjór. Og rauðvín. Sitjum og tölum um íslenskar bókmenntir, stráka og stelpur, ástina og lífið. Ljósmyndir og málverk og ég veit ekki hvað og hvað. Og skyndilega er klukkan að verða tólf, og tími til að hlaupa í síðasta metróinn.
Á leiðinni heim heyri ég ljóshærða stelpu segja við aðrar tvær: "Og ég var ofsalega ofsalega full".... "Fyrirgefiði stelpur, en getur verið að þið séuð íslenskar?". Þær voru á O'Reillys, sem ég hata. Gaman að því.
Gef vini mínum nokkra smápeninga. Hann situr alltaf á sínum stað með hundana sína tvo. Og lítið ferðaútvarp. Maður í kringum fertugt; og ég ímynda mér alltaf að hann sé gamall hermaður. Örugglega bara fíkill, en hvað um það. Honum gef ég alltaf nokkur sent, afþví að hann er svo kurteis. Bíður góðan daginn/gott kvöldið og þakkar fallega fyrir sitt. Og um daginn þegar ég var á leiðinni heim, labbandi Anspach og ógeðslegi maður ætlaði ekki að hætta að syngja fyrir mig - þá hugsaði ég tvennt: Ef ég bara kemst að hermanninum, þá er ég seif. Og, ef ég kemst ekki að hermanninum, þá slæ ég hann utanundir. Hann fór.
Enda hef ég nú aldrei komist í hann krappann. Þrisvar hefur samt ekki verið gaman. Á metróstöðinni þegar gamli kallinn bjargaði mér með því að vilja endilega spjalla. Á Gare du Midi og þarna um daginn.



mánudagur, apríl 14, 2003

Hvílík snilld - hvílík snilld!!!
Þessi New York lygasaga sló aldeilis í gegn. Hananú - ég plataði ykkur, hahaha. Liv átti að sjálfsögðu að vera stórleikonan Liv Tyler. Jájá, þetta var nú gaman. Mér fannst ég ekki hafa neitt að segja, svo ég laug. Sorrý.

//

Nú er hinsvegar engin gúrkutíð, og satt best að segja hef ég ekki hugmynd um hvar ég á að byrja. Ætli byrjunin sé ekki best?

Á föstudeginum fyrir viku skelltum við Camilla okkur á stutt skrall; ferð á uppáhaldsstaðinn okkar (a.k.a. "The F- place") og fengum okkur í bleikutána. Hún Camilla á nefliega við það stóra vandamál að etja, að hún drekkur ekki bjór. Og í þetta skiptið lét ég undan þrýstingi, og fékk mér kokteil. Bleika stelpu (pink lady). En við fórum heim fyrir miðnætti, og var það vel.
Laugardaginn þar á eftir vann ég á þrem stöðum; og þennan dag var frægi NY brandarinn til. Ég laug nefliega að Mikael, sem trúði mér (með þónokkrum efa þó). Ég þóttist vera skild Liv Tyler og hennar manni, svo ég væri á leið í brúðkaupsveislu. Þetta kvöld horfði ég kláraði ég líka loksins að horfa á Billy Elliott. Hún er frábær! (Gott að klára að horfa á mynd með tæplega tveggja ára millibili. Pælið í því, tvö ár!! ...vá hvað ég er orðin gömul).
Á sunnudeginum öskraði ég af hlátri yfir Fjórum brúðkaupum og jarðarför, hitti stelpurnar svo á kaffihúsi, og síðar Benna, Auði og Hrafnkel listamann. Hvílík snilld.
En mánudagurinn var málið. Ed Harcourt. Núna á ég diskinn, og hann er idol. Hvílíkur snillingur.
Þriðjudagurinn var gúrka.
Á miðvikudagskvöldið hitti ég stelpurnar á Zebra, og fékk rosalega gott lasagna.
Á fimmtudaginn fór ég á ferlega misheppnaða folk/rock tónleika á Zebra. Kannski ekki svo misheppnaða, en ekkert frábæra heldur. Frekar slaka svona.
Og á föstudaginn.... já. á föstudaginn var ég þreytt og var heima.
Á laugardaginn fórum við Camilla í buxnaleiðangur (og mátuðum því engar buxur). Og Theres hitti okkur í skóbúð þar sem engir skór voru til í minni stærð (djöfuls!). Skelltum okkur í bíó og sáum myndina Confessions for a dangerous mind, leikstýrða af George Clooney. Nokkuð góð bara, já. ég mæli með henni. Og svo áttum við Theres gott picnic á bekk fyrir utan íbúðina hans Adams (sem ég forðaðist sem heitan eldinn í skóbúðinni; hvílík skræfa. Hvað er eiginlega að manni?!). Þar voru sagðar sögur af útilegum og þessháttar. Mikið hlegið, mikið gaman.
Og í dag fór ég á markaðinn, og enn er konan ekki komin. Hvar er hún eiginlega?! Mig vantar afmælisgjöf handa ömmu. Komdu strax! Og svo komu gestir frá Íslandi og Hollandi.
Og þannig var nú það.

//

Aðrar fréttir:
Eins og hefur kannski áður komið fram, verður fönkbandið Jagúar hér statt föstudaginn langa, 18.apríl. Þar ætla ég að guðlasta, og mæta. Og dansa af mér rassinn.
Daginn eftir hef ég í hyggju að skella mér til Amsterdam að heimsækja Guðrúnu Önnu frænku mína, og manninn hennar Leon (fyrir ykkur Brusselinga, þá leikur hann einmitt með Amstel-bandinu). Og svo ætla ég vonandi að finna Benna og hans vini einhvursstaðar á tónleikaför...

En núna er ég farin að þreytast, og mig grunar að þessi færsla sé orðin nógu löng. Svo ég ætla að halda áfram að hlusta á Ed Harcourt, og metast og ræða við Mikael um plötur.

P.s. Var ég búin að segja ykkur frá Ed Harcourt? Endilega! Fáið ykkur plötuna From Every Sphere.