--> Björg bullar
<< current
Skoða gestabókina
Nafn :

Netfang :

Heimsíða :

Skilaboð :
This page is powered by Blogger. Isn't yours?

miðvikudagur, maí 07, 2003

Amaya Arzuaga
er með heimasíðu þar sem skórnir mínir eru á mynd!!!
farðu í spring/summer 2002 og þar muntu strax sjá mína íðifögru skó - á þriðju mynd frá vinstri. og svo á nær öllum öðrum myndum, einnig í hvítu og rauðu. Oh, þeir eru svooooo flottir. I love my shoes.

er ekki til neitt lag um skó?


Brussa, brussa, svakaleg brussa, svakaleg brussa í svörtum hælaskóm - með rauðar neglur, rauðar neglur og í sumarkjól! Svakaleg brussa í svörtum hælaskóm.

Þetta var sumsé nýi textinn við skátalagið sem allir áttundubekkjarnemendur syngja í sumarbúðum á Úlfljótsvatni, og lýsir þessi texti algjörlega lífi mínu þessa dagana!
Í gær, eftir íslenskuprófið, fór ég sumsé á stúfana. Nær dauða en lífi vegna hungurs, staulaðist ég búð úr búð í leit að tímariti. Tók svo skynsamlega ákvörðun: afhverju að kaupa sér tímarit þegar maður getur keypt sér annars-handar geisladisk?! Og fyrr en varði var ég komin að hinum margrómaða stað: The F-place! Fékk mér að sjálfsögðu súpu og bjór (þjóðarrétt... minn) og las flæmska dagblaðið. Viðtal við einhverja menn á fimmtugs-, sextugs- og sjötugsaldrinum sem eru í hljómsveit. Hafa annaðhvort spilað eða unnið með, eða jafnvel bara verið í frægum hljómsveitum. Portishead var nefnd, ásamt Mogwai og einhverju fleiru. Ef ég á að segja alveg satt þá var ég nú ekki að leggja neitt of mikla áherslu á blaðið - það er svo skemmtilegt fólk sem vinnur á þessum stað að ég gæti dáið! (tjah, frekar vildi ég nú lifa og fá að vera með í gamninu, sem ég og gerði... allavega!) Það var þarna staddur Breti í gallajakka. Þegar ég kom inn, stóðu eigandinn (ungur maður á fertugsaldri, dökkhærður og myndarlegur. Hress og skemmtilegur og bíður alltaf góðan daginn. Í það minnsta bros) og Bretinn í gallajakkanum við barinn, og voru að hlæja að barstúlkunni (sem ég hef bara séð einusinni áður. Dökkhærð - eins og allir aðrir, og nærri því ískyggilega mjó - eins og allir aðrir. hvað er málið?!) sem hafði augljóslega verið plötuð til að drekka einhvern sterkan óþverra, því hún sagði eitthvað á þessa leið: "Not even loads of dry vodka is that strong!!" Og í þær sirka fjörutíu mínútur sem ég sat, þá voru endalausir brandarar í gangi, verið að stela hinu og þessu - og alltaf: Don´t tell, glottið.
Og þar sem ykkur er örugglega farið að leiðast á The F-place (sem gerist aldrei!) þá er það næsta stopp. Ég fór í Le Magnifique - plötubúðina. (Sem heitir alls ekki Le magnifique, mér finnst hún bara mögnuð) og keypti mér Tindersticks albúm er ber nafnið Gluggatjöld, eða curtains. Ég er semsagt að vinna í kvennlegu hlið Bjargar - og lá leiðin í R&V, rándýru-merkja-second-hand-búðina á horninu. Þar má meðal annars kaupa Gucci sundbol og YSL kjól. Ég sá skó! Svarta háhæla skó. Guð þeir eru svo flottir!! og pælið í einu - þeir voru í minni stærð!! Hinsvegar kostuðu þeir 75€ (kr. 6.225,-). Ég ákvað að láta það bíða. Labbaði fimm skref frá búðinni, sneri við í 180° og bað hann um að geyma þá fyrir mig. Þvínæst fór ég í hina second-hand búðina. Björg sér þrenna boli og buxur. Fer í mátunarklefann, og skellir sér í buxurnar (sem eru ekki nógu góðar í sniðinu) og bolinn (sem er renndur). Fer fram og skoðar sig í speglinum, og líst ágætlega á bolinn. Fer aftur í klefann, og hyggsat afklæðast. Nema hvað - að rennilásinn neitar að rennast niður! Í örvæntingu minni tosa ég og toga - teygi og strekki en ekkert gerist. Þvínæst reyni ég að tosa hann upp-yfir mig, en hann kemst ekki yfir hausinn! Það tekur mig ekki nema átta mínútur að koma höndunum í gegnum ermarnar aftur, og neðri hluta bolsins á sinn stað; svo ég fer fram í leit að aðstoð. Afgreiðslukonan reynir við lásinn - og tekst að endingu að koma honum niður. Hlægilegasta aðtriði dagsins, þrátt fyrir gleðina á The F-place og skófundinn!
Restin af deginum verður sögð í stikkorðum: Myndavél - myndarlegast maður/strákur sem orðið hefur á vegi mínum þessa átta mánuði sem ég hef verið hér! - Rautt naglalakk - eftirsjá - ennþá meiri eftirsjá - og sjá!
ég er að fá gesti, eða svona næstum! Þegar heim er komið segir Andri Egils mér að hann og Högni tvíburabróðir hans séu á leið til fyrrum heimaborgar sinnar (sem mundi einmitt vera Brussel) og munu þeir gista hjá fólki sem ég þekki nokkuð. Ég hlakka mikið til!

Og í dag fór ég í bæinn og keypti skóna! Þegar ég var að borga, spurði konan mig hvort ég vissi ekki alveg örugglega að þetta væru Amaya Arzuaga - skór? Það hafði ég ekki hugmynd um, og veit í þokkabót ekkert hver þessi Amava er - en fékk þá að heyra það, að skórnir sem ég er í þessa stundina og eru lítið sem ekkert notaðir - kosta fjögurhundruð evrur út úr búð (400€ = 34.000 kr)!! Alltaf að spara!
Og svo fengum við Emma okkur súpu á Ðí Eff Pleis. Hvað annað?





mánudagur, maí 05, 2003

Ef það hefur einhverntíman verið tími fyrir....
bjartsýni

ég held að umferðaljósin
séu skotin í mér
af því þau eru alltaf að blikka mig.
ég held að bráðum stytti upp
af því nú er farið að rigna.
ég held að síldin komi bráðum aftur
af því búið er að gera samninga
um sölu á henni.
ég held að gjaldheimtan láti mig í friði
af því ég elska friðinn

ég held að bráðum verði allt í lagi
af því nú er allt í ólagi.
ég held að bráðum hefjist lífið
af þvi nú er allt svo dauðalegt.

Ólafur Haukur Símonarson.