--> Björg bullar
<< current
Skoða gestabókina
Nafn :

Netfang :

Heimsíða :

Skilaboð :
This page is powered by Blogger. Isn't yours?

föstudagur, maí 16, 2003

Um daginn talaði ég hér um linka. Ragnheiður hefur nú í hótunum um að taka mig af sínum Hall of Fame, linkalista!! Hvurslagt eiginlega er þetta. Mér er því hér með þröngvað til bloggs (vá hvað þetta er fáranleg setning), og hyggst ég berjast fyrir sæti mínu á listanum (það mætti halda að ég væri í framboði fyrir alþingiskosningar...)!!

Annars fékk ég aftur mígrenikast í gær. Andskotans djöfuls.


Ekki svo alls fyrir löngu, skrifaði ég hér um linka. Nú, Ragnheiður hefur í hótunum að taka mig af sínum Hall of Fame, linkalista - bloggi ég ekki. Hér blogga ég því, og hyggst berjast fyrir sæti mínu!!

Svo fékk ég aftur mígreni í gær. Andskotans djöfulsins.


þriðjudagur, maí 13, 2003

Af tónleikahaldi

sem fyrr munu hér stíga á stokk þrusugóð bönd. Mogwai 26. maí, og ég var að sjá að það er uppselt!! (sorrý Andri!). Ég ætla hinsvegar að hugga mig við það, að stuðbandið Hot Hot Heat spilar á Le Botanique eftir viku; 20. maí. Og The Go Betweens eru hérna á föstudaginn... Já, og svo auðvitað The Kills, 10. júní.
...brjálað að gera.

//

Steinar vann ekki í getrauninni, þar sem hann svaraði vitlaust. Hinsvegar er komin ný getraun; hvaðan er setningin ég vil ekki neitt, humar eða frægð?


ég vil ekki neitt, humar eða frægð

ég vil bara að allir séu frískir.


mánudagur, maí 12, 2003

Hér eru þrumur og eldingar. Og því spyr ég: hvort kemur á undan, þruma eða elding? (Svör berist á kommentakerfi).

Annars á ég enn í vandræðum með teljarann. ég fór á síðuna, og reyndi að 'logga' mig inn; en það tókst ekki. Bað um nýtt password (íslenska er mitt má VÁ VÁ VÁ!!!! ÉG er komin með svarið við spurningunni hér að ofan!! L) en það virkar ekki heldur.

Enn í sjokki yfir þessari ljósa/hljóð/hljóð/ljósa (svarið fæst ekki gefins) sýningu!


sunnudagur, maí 11, 2003

Ég er furðuverk
stendur á bol sem mamma keypti til styrktar Leikskólakennara-nemum.

Einhverntíman talaði ég um tæknivædda móður mína (sem er ekki svo mjög tæknivædd - en kann að laga biluð video-tæki. Tvenn talsins voru á mínu heimili - og mamma uppgötvaði rétt áður en leggja átti í ferð til að kaupa þriðja (ekki bilað samt), að það er hægt að laga þau með því að stinga þeim í samband). Ég er greinilega eitthvað skyld henni, því mér reynist ómögulegt að komast inn á teljari.is og sjá heimsóknalista-eitthvað. Þess má geta að ég er með notendanafn (að sjálfsögðu - ég er með teljara, ekki satt?). Hjálp, einhver?

Þess má geta að tæknivædda móðir mín á afmæli í dag. Telja árin einhverja tugi og ár. Áratugi. Gráu hárin og vitið virðast koma með aldrinum, ásamt því að hjartað stækkar. Bæði hennar og mitt, því að ég elska hana svo óskaplega mikið, og ég er ekki frá því að þær tilfinningar séu endurgoldnar.

//

En já, ég er furðuverk. Hér sit ég, og eftir 55 mínútur ætla ég að hitta Camillu og Therese á The F-place. Það gerir mig þó ekki að furðuverki.
Ég er furðuverk, afþví að ég kem frá Íslandi. Á föstudaginn tók ég leigara með Therese, og leigubílstjórinn var hinn ágætasti. Hann og Therese töluðu frönsku, og ég hlustaði. Umræðurnar snerust aðalega um hvaðan við kæmum, golfstrauminn, hita í Svíþjóð og þessháttar. Þar til að hann sneri sér að mér, og sagði: Hvaðan sagðistu koma? Islande, sagði ég. "Ísland?! Hvað er það?" sagði grey bílstjórinn. Og kom þá upp úr krafsinu að hann vissi nákvæmlega ekkert um Ísland, hvar það var, hvað það var, hvernig það væri o.s.frv. "300.000? Millions? --- People?!!! You are one of 300.000 people?!!" Best er samt alltaf þegar viðmótið er: Neinei, þú ert ekkert frá Íslandi - það er ekki til.

//

Ég var í nýju skónum á föstudaginn í fimm klukkustundir. Lítill kökubiti; ekkert mál. En þeir fara ekki aftur í bæinn hér. Göngustéttirnar voru allar hellulagðar fyrir 40 árum síðan, og eru skakkar og sætar fyrir alla nema pinnahæla.