--> Björg bullar
<< current
Skoða gestabókina
Nafn :

Netfang :

Heimsíða :

Skilaboð :
This page is powered by Blogger. Isn't yours?

laugardagur, maí 24, 2003

Þrjár mínútur í júróvísjón....
Og afþví að mínúturnar eru bara þrjár (ég sit semsagt fyrir framan sjónvarpið!), þá ætla ég bara að nota þetta tækifæri til þess að óska öllum vinum mínum sem voru að útskrifast TIL HAMINGJU!!

og svo koma fréttir síðastliðinna daga á eftir, sem og fréttir af næstu viku....


miðvikudagur, maí 21, 2003

og þá er ég búin í prófum


Jane
You're Jane Eyre of Jane Eyre by Charlotte Bronte!


Which Classic Female Literary Character Are you?
brought to you by Quizilla



mánudagur, maí 19, 2003

...úps...




Sko, Útlendingar eru að stela vinnunni frá okkur. Þess vegna er ég atvinnulaus. Við þurfum að gera eitthvað í þessu! Þú kýst Þjóðernissinna!




Hvað kýst þú?








sunnudagur, maí 18, 2003

Takið eftir þessum ótrúlegu færslum síðan í gær! Þið ekki-blogger-notendur - þetta er nákvæmlega það sem gerist þegar að blogger kemur upp með meldingu, maður fær færsluna ekki til baka, skrifar hana því upp að nýju - en sjá! Hún var þarna allan tímann!!

//

Í dag keypti ég þrjá miða á Hot Hot Heat! Bravó!! Andri&Högni, ég hlakka til að fá ykkur. En ég keypti ekki miða handa Therese. Hún var pottþétt sofandi, afþví að hún skellti á mig í hádeginu, og slökkti svo á símanum sínum. Ég vona samt að hún komi.
Og svo held ég að ég verði að fara að fá myndavélina hans Valda lánaða, svo ég geti sett inn myndir af öllu þessu blessaða fólki. Ég hef neflilega verið að fatta, að fólk sem ég þekki ekkert, en þekki sama fólk og það þekkir, er að skoða skrifin mín. Eins og til dæmis Ragnar Nói, (er hann bróðir Söndru?) en hann er einmitt í Vín. Þar verða Sunna María og Kalli, hennar kall í sumar. Ég fer í heimsókn til Vínar í sumar ;)
En talandi um heimsóknir - þá eru mamma mín og pabbi (altso, maðurinn hennar mömmu sem ég kalla líka alltaf pabba. Bara til að forðast allan misskilning...) og Ingvar Kristinn og Guðni Páll að koma í heimsókn 31. maí. Bravó bravó. Meira um það síðar....

//

Ég hef löngum reynt að bæla þessa tilfinningu. Hún skýtur samt upp kollinum endrum og eins, sérstaklega þegar ég horfi á sjónvarpið eða hlusta á tiltekinn geisladisk. Stundum þegar ég er á video-leigunni....
Sumar konur eru gefnar fyrir háa menn. Aðrar dökkhærða, rauðhærða, ljóshærða. Bláeygða, græneygða. Skegg. Krúnurakaða. Litla fingur. Stórar tær. Brotnar tennur. Skorna vöðva. Að ég tali nú ekki um útstæð eyru. Aðrar dreymir um að hitta George Clooney, Paul McCartney eða Robin Williams.
Ég hinsvegar? Ewan McGregor.
Ég var að horfa á Jay Leno, og ég stóð mig að því að hoppa næstum af kæti, þegar ég komst að því að hann væri fyrsti gestur. Og verða öfundsjúk þegar hann kyssti söngkonuna á kinnina. Tala nú ekki um þegar ég kom heim og sá að hann er giftur og á tvær stelpur!!
En hann er flottur.