--> Björg bullar
<< current
Skoða gestabókina
Nafn :

Netfang :

Heimsíða :

Skilaboð :
This page is powered by Blogger. Isn't yours?

föstudagur, maí 30, 2003

Dónaskapur ?
Eftir jólin keypti Mikael, fransmaðurinn, fyrir mig miða á tónleika með Björk í París 17. júní. Hefur því legið fyrir í nokkra mánuði að þá muni ég fara til Parísar og gista hjá Mikael, ásamt því að fara með honum á tónleikana. Hef ég hlakkað mjög mikið til, þar sem ég hefi aldrei áður sé Björk á sviði.

Þó komu upp í mér ákveðnar efasemdir um hvort ég ætti að fara á Björk í París, færi ég á Hróarskeldu. Nú liggur hinsvegar nokkuð ljóst fyrir, að fái ég nokkurra daga frí þarna í lok júní, fari ég að hitta pabba minn og hans fjölskyldu (bestu stjúpmóður mína og fallegustu börn í heimi) þar sem þau munu dvelja með vinum sínum á Portúgal. Og hlakkaði ég því meir til en nokkurntíman áður að fara til Parísar, sérstaklega fyrst það er langt síðan ég kom þangað síðast.

Í gær hinsvegar, tókst fyrrnefndum Mikael að móðga mig svo mikið, að þó ég hefði miðann, færi ég alls ekki!
Svo virðist vera sem kærasta hans (eða vinkona? ég hef ekki hugmynd) sé að koma til Parísar á þessum tíma, og hana langar svona rosalega til að fara á tónleikana. Þá sömu. Nú, svo Mikael virðist vera búinn að ákveða að gefa henni minn miða - þar sem hann langar svo með henni. "Ég veit þetta er svekkjandi - skrifaðu mér til baka og segðu mér hvað þér finnst".
Up yours, Mikael

(sorrí, ég verð að fá að segja þetta einhversstaðar. mjög pent í bréfinu, en svona er ég bara. Pen.)

Ætli ég sé ekki svona reið, vegna þess að Mikael er vænsti strákur, og þetta kemur mér algjörlega að óvörum. Hvernig dettur manninum þetta í hug?!



fimmtudagur, maí 29, 2003

ég fór í klippingu í dag. ég er ekki enn búin að ákveða hvort ég hefði betur sleppt því... kannski ekki alslæmt, en heldur ekki alveg það sem ég hafði hugsað mér. kannski bara alveg ágætt, sé tekið tillit til málleysis mín og grey konunnar sem klippti mig. það vantar bara svoltið rokk í þetta. en kannski má bjarga því. Kannski en bara ef !
Annars var ég að koma heim frá Fred. Og Therese. Fred and Therese sitting in a tree. K-I-S-S-I-N-G. First comes love (then comes marrige. then comes Therese with a baby-carrige).
Við Therese töluðum á ensku og sænsku/dönsku. Og Fred á frönsku. enskan hans er víst ekki upp á nema tvo fiska. en hann er alveg frábær.
á morgun fer ég svo til Amsterdam. að hitta frábæra fólkið, sem er svo indælt að taka á móti vesalingnum frá útlandinu.


þriðjudagur, maí 27, 2003

Ágætu lesendur - hér fáið þið að lesa bréfaskipti milli mín og Chantal vinkonu minnar, en okkur hefur reynst mjög erfitt að hittast ! (Öll bréfin báru subjectið Fuck, og ætli mér beri ekki skylda að það tók okkur tæpa fjóra mánuði að hittast síðast!

Chantal:
I heard yur message too late and I couldn't understand what phone number you
said so I couldn't call back, I am sorry!
How are you doing today??Xxxxx
Björg:
well ofcourse it´s a mess :) and don´t be sorry!
I´m fine, the folks just went to iceland so I´m almost here alone... some
woman staying at the house.
are you doing something tonight? xxx
Chantal:
yes I have to work:(((
I would love to see you!
Björg:
Tomorrow?
I´m going to Amsterdam on Thursday, and my family comes on saturday...
Chantal:
aahhhhhh no I WANT TO SEEEEEEEEEEE YOU!
Björg:
Hey! :) I really wouldn´t mind seeing you too!!
Chantal:
I will be in holland..thursday and friday, saturday and sunday....after??
Björg:
well - my family will be here until june 9th!
if you´re in amsterdam on friday.....?! (tough luck!)
Chantal:
no....in the south:(((
Björg:
So you´re working tomorrow aswell - we´ll both be in Holland after that,
just not the same place and then I´ve got my family here......
four months, anyone ;)
xxxx
Chantal:
NOOOOOOOOO NOOOOO NOOOOO
Let's see eachother in the week after??
I am moving the 14th....if you are bored that day:)))xxxxx
Björg:
well...
I guess I won´t be bored because I´ll be helping my friend moving into a
flat that has a wonderful garden!!
xxxxx
Chantal:
:))) and where we will have a BBQ before you leave!!!xxxx











Þetta er ótrúlegt !!
- núna á ég gemsa. jah, ég átti nú reyndar alltaf gemsa - bara ekki númer. En í gær GAF Ásgerður mér númer. Algjört hallæri, eins og maður hefði ekki getað drullast til þess að gera þetta sjálfur?!! En Ásgerður fær semsagt 10.000 prik fyrir gjöfina. Svo ef þú vilt hringja í mig, eða senda mér sms, þá er síminn svo mikið sem 00 32 0478 224481. Og svo er bara að finna hleðslutækið, ha......
- og þegar ég byrjaði að leita að hleðslutækinu, þá ákvað ég bara að fara að taka til! Það er líka ótrúlegt. Já, og svo ætla ég líka í klippingu! úff... bara allt að gerast. Það er sem ég segi.

Og á fimmtudaginn fer ég til Amsterdam, og kem aftur með liðið á laugardaginn. Ótrúlega hlakka ég mikið til. Strákarnir fóru samt í dag, og ég hefði glöð vilja hafa þá lengur. Það var líka alveg sérstaklega gaman í gær - afþví að ég var nýkomin heim, þegar dyrabjallan hringir, og haldiði ekki að Andri standi fyrir utan í hjólagallanum! Stórskemmtileg uppákoma. Ekki á hverjum degi sem myndarlegir herrar koma hálfnaktir í heimsókn (nei, ég segi nú bara svona...)! En svo var ég boðin til þeirra í mat. Það var líka ótrúlega gaman. Bróðir minn hérna í Brussel (a.k.a. Ragnar, sonur Ásgerðar. hann er bara alveg eins og Ingvar stórilitlibróðir) sló fram alveg frábærum gullmola! Við vorum að tala um ættarmót, þegar Ragnar segir: "Það eru allir á Íslandi skyldir í sjöunda eða áttunda lið, sem hlýtur að þýða að fólkið í áttunda lið hafi verið rosalega duglegt að eignast börn". (þess má geta að Andri setti þetta upp í eina rosalegustu reikningsformúlu sem ég hef heyrt í lengri tíma, og afsannaði kenningu Ragga).

Í nótt dreymdi mig rjóma. Rjómatoppa. Og mig dreymdi semsagt að það að dreyma rjómatoppa þýddi að mann hlakkaði til. Sem hlýtur að þýða að ég hlakki til.


sunnudagur, maí 25, 2003

Þegar ég var sjö ára, fór ég með mömmu í verslunarkjarnann Glæsibæ, og sá ég þar bók. Hún hét: Skólafélagar mínir, og var ótrúlega flott. Lillablá með músum framaná. Mig langaði ótrúlega í hana, og fékk að endingu (ekki einusinni ímynda ykkur að ég hafi fengið hana í sömu búðarferðinni. Nei, aldeilis ekki og vil ég þakka mömmu minni kærlega fyrir uppeldið! Eitt af boðorðunum 10 var: Þú getur ekki fengið allt sem þig langar í, og það er hollt að langa í eitthvað).
Nú, sú bók fylltist fljótt, og fékk aðra - ætli ég hafi ekki verið níu eða tíu ára. Sú var með trúðum. Ég man að mamma skrifaði í þá bókina. Nafn, aldur. Uppáhalds spil: "Ólsen Ólsen" (hún kunni sko ekkert annað. Og þegar hún loks lærði Rommí, þá gleymdi hún Ólsen Ólsen. hehe). Uppáhalds bók: "Gvendur Jóns og ég".
Um tíma var ég ekki viss um hvort það væri í alvöru bók, eða hvort mamma hefði bara búið þetta til. Pabbi minn, maðurinn hennar mömmu, altso (ég er svo heppin að eiga tvo!) heitir einmitt Guðmundur Jónsson (með voðalega flottu A-i í millinu). Þessa bók var ég nú samt að finna, og er að lesa. Ef hún leynist í skúmaskotum bókahyllna ykkar heimila, eða annara, mæli ég hiklaust með henni. Hún ryfjar upp fyrir manni barnæskuna (og tala ég nú eins og ég sé fædd 1947, því fæðingarári ólöstuðu), þegar litlir hlutir voru óendanlega mikil ævintýri. Að finna hörpudiska í á með Hönnu (sem fyrirgefur mér það ekki að hafa gefið útlensku konunni þann fallegasta!), að hafa kallaði Sigrúnu asna (sorrý, en það var mjög fyndið - sérstaklega af því að hún var á tímabilinu þar sem allt var satt af því að "mamma mín segir það". Því voru samtöl okkar svona: "Sigrún, þú ert 4 ára" "já, ég veit. mamma mín segir það". "Sigrún, þú ert asni" "Já, ég veit. mamma mín segir það"). Þegar við fórum að tína blóm úti í móa, jarðsyngja fugla, og labba svo heim til Sigrúnar og fá heitt súkkulaði. Þegar fjölskyldan mín þekkti engann. Bara Dísu frænku og kallinn sem lærði hjá pabba (afhverju get ég ekki munað hvað hann heitir?!)


En nú er maður staddur í útlandinu, sem er bakvið Esjuna. "Guð skapaði Ísland og Esjuna. Svo setti hann útlandið á bak við Esjuna, og þar er það ennþá." Gvendur Jóns.
Í síðustu viku fór ég með Andra og Högna á tónleika með stuðbandinu Hot Hot Heat, og það var gaman. Við komum seint heim, og ég öfunda þá satt best að segja ekki af heimkomunni, hehe. Á fimmtudaginn fór ég á tónleika í Brugge með Kammersveit Reykjavíkur og Vladimir Ashkenazy. Wonderful!
Í næstu viku fer ég aftur til Amsterdam, og á laugardeginum koma mamma og pabbi og Ingvar Kristinn og Guðni Páll.
Pabbi og María og Þóra Björk og Jóhann Bjarkar verða aftur á móti í Portúgal frá 17. júní allt til 1. júlí. Hróarskelda er einmitt frá 26. - 31. júní..... það er allt að gerast !!

En leyndardómur dagsins í dag, er sá: að takist manni að gera ævintýri út hversdagsleikanum, þá getur lífið verið alveg ágætt. Og ekki bara ágætt, heldur ágætt.