--> Björg bullar
<< current
Skoða gestabókina
Nafn :

Netfang :

Heimsíða :

Skilaboð :
This page is powered by Blogger. Isn't yours?

föstudagur, júní 06, 2003

Elsku elsku Oddný og Raggi - til hamingju með stelpuna!

Ástæðan fyrir þessari þögn (kannski ættuð þið bara að þakka fyrir hana, það er ekki á hverjum degi sem ég þegi!) er að mamma og pabbi eru í heimsókn, með Ingvari og Guðna Páli. Ég sótti þau (með tveggja daga dvöl) til Amsterdam, og við tókum lestina hingað til Brussel. Þar var allt rafmagnslaust. Slökkt á öllum ljósastaurum, og pabbi vildi meina, að þótt hann væri frægur, þá væri nú óþarfi að slökkva á öllum ljósastaurunum fyrir hann. Skuggaleg borg.
Núna er ég á fullu að reyna ná sambandi við einhver hostel í Antwerpen, til að fá gistingu fyrir morgundaginn.... það er erfitt!! En svo ætlum við til Amsterdam á sunnudaginn, og gista þar loka nóttina þeirra.
Allt á síðustu stundu.
Hér er búið að vera yndislegt! 25 - 30° hiti og sól og ég veit ekki hvað og hvað.

Guðríður.... hm. ah, nei. ég ætla neflilega ekki að koma á Hróarskeldu. Því miður. Eftir mikil heilabrot, sá ég að lítil systkini verða ekki alltaf lítil, svo ég fer til Portúgal (þarf bara að láta pabba vita!). En ég er nú samt að pæla í að koma til Köben áður en ég fer heim - getið þið hýst mig?

Meira seinna - ég ætla að reyna að plögga þetta...