--> Björg bullar
<< current
Skoða gestabókina
Nafn :

Netfang :

Heimsíða :

Skilaboð :
This page is powered by Blogger. Isn't yours?

fimmtudagur, júní 19, 2003

Ég er ekki mikið fyrir að skylda fólk til að gera hluti. Því vil ég biðja fólk um að skrifa álit sitt á vandræðagangi mínum hér að neðan. Texta - augljóslega skrifuðum af dekurbarni tuttugustu aldarinnar.


Ég er í klípu.
Einhver misskilningur tók sig upp hjá okkur mæðgum, og þegar ég hélt að mér væri guðvelkomið að fara bæði til Vínar og Kaupmannahafnar - var mér í raun guðvelkomið að fara bara til Vínar í staðinn fyrir bæði!
Og hvort á ég nú að eyða þónokkrum pening í að gera það sem mig langar, á móti vilja móður minnar - eða fara að ráðum hennar og spara peninginn.

spara spara - svei!

Ég vil vekja athygli á því að ég fer ekki á Hróarskeldu eins og mig langaði svo mjög mikið - heldur fer ég til Portúgal að hitta foreldrana og litlu systkinin.
Þarf ég að læra að forgangsraða rétt - er ég að sóa lífi mínu?
Ég tel reyndar að það sé rétt forgangsröðun að fara með litlu syskinum sínum til útlanda... frekar en að hlusta á brillíant tónlist í góðra vina hópi. Eða ég verð að vona það.

Ég vil einnig vekja athygli á því að ég fór ekki á Bjarkartónleikana í París, eins og áætlað hafði verið.


Djöfulsins vald hafa þessar mæður yfir manni. Maður er staddur í mörgþúsund kílómetra fjarlægð, en alltaf reynir maður að gera eins og þær segja, og ef ekki fær maður samviskubit.
Er kominn tími til að brjóta þessa ósýnilegu hlekki í eitt sinn fyirr öll - og hlaupast af stað?





miðvikudagur, júní 18, 2003

í dag gekk ég framhjá bókabúð og Harry Potter og Fönixreglan var í glugganum - og það til sölu! Ég hefði ég keypt hana, hefði ég verið með pening (og nennt að standa í biðröð).
Djöfull að kunna ekki nóg í frönksku, mér er neflilega ómögulegt að muna hvað hún heitir.


þriðjudagur, júní 17, 2003

Í hita dagsins fór ég í göngutúr. Kirsuberjatrén halda áfram að gera mig hamingjusama - nú eru farin að vaxa á þau kirsuber! Það mætti halda að þau væru lítil börn, sem tækju óvæntum framförum í hverri viku - slík er gleði mín yfir nýjum uppgötvunum mínum; gróðri nátturunnar.
Og enn átti ég yndislegt kvöld á hálfgerðum svölum Therese, þar sem við sátum meyjarnar á púðum og sötruðum örlítinn bjór og dísætt freyðivín ásamt því að narta í afmæliskökuafganga.

Föður minn vil ég biðja afsökunar á því að vekja hann síðla kvölds - og einnig að hafa ekki hringt í hann í dag. Slíkt er lífið.

Á morgun á að skýja, ef til vill rigna - hvur veit.
Og ef planið helst (svona erum við farnar að skipuleggja okkur, barnfóstrurnar) þá ætlum við þrjár í bæinn - ég að kaupa bikiní. Ég veit ekki með hinar. Það verður örugglega ömurleg stemmning innan búningsklefans, en ekki utan. Kannski bara að maður taki ömurlegheitin út í einum pakka - eyði peningum, og kaupi sér langrþráðar gallabuxur (alls ekki að ég viti um einhverjar gallabuxur sem fást til sölu - þær eru yfirleitt ekki í búðunum. mig vantar bara eitt stykki nothæfar, þægilegar, og flottar gallabuxur - ætlast ég til of mikils?!).


sunnudagur, júní 15, 2003

Rosalegt að vera tölvulaus!
En ég er nú samt búin að fjárfesta í ferð til Portúgal (eða já. ekki ég, heldur pabbi). Og næst er bara að sjá ferðir til Vínar og Kaupmannahafnar. Og ég er að pæla - er kannski ekkert vitlausara að kaupa bara interrail miða, og taka næturlestar á milli? Ég geri mér fulla grein fyrir tímanum sem fer í ferðalögin, en svoleiðis verður það bara að vera. Ég hugsa þetta.
Guðríður, hvenær myndi ég koma? Góð spurning! Í byrjun júlí - kannski áttunda?
Ég er semsagt ekki búin að festa dagsetningarnar neitt. Ég veit bara að ég kem til Brussel aftur 1. júlí, og langar til Gent. Og svo þarf að kveðja The f-place og dna. Og puck puck. (Hér var ég búin að skrifa niður mjög langa hugsunarromsu, sem ég áttaði mig svo á, að ykkur þætti ekki mjög áhugaverð!) En þetta verður allt að skýrast á næstu dögum. Verður! að gerast, ef maður ætlar að fá miða.

Ósk mín - ég er alltaf á leiðinni að senda þér e-mail, hvort ef það gerist ekki á morgun!

Í dag var 17. júní haldinn hátíðlegur í bongóblíðu í Brusselborg. ss pylsur og ég veit ekki hvað.

Verptir þú í skóinn minn?