--> Björg bullar
<< current
Skoða gestabókina
Nafn :

Netfang :

Heimsíða :

Skilaboð :
This page is powered by Blogger. Isn't yours?

fimmtudagur, ágúst 07, 2003

Afhverju - já afhverju verður kaffi kalt? Ég er enginn hálviti - ég veit vel að kaffi kólnar, en ég þoli bara ekki að það gerist svona fjandi hratt! Svona er staðan. Mig langar í kaffi (eða, ég er orðin þreytt og þarf kaffi), svo ég rölti yfir á kaffistofu, þvert yfir húsakynni Glitnis - fram hjá afgreiðslunni. Fæ mér kaffibolla (ekkert sérstakan, sjálf"sali"). Labba yfir að borðinu mínu; fæ mér sopa (kannski tvo) og legg bollan frá mér. Færi nokkur skjöl - tek bollan, og sjá! Kaffið er kalt.

Ég er með heilahimnubólgu C í vinstri upphandleggsvöðva.
Fór í bólusetningu í gær, kom svo beint í vinnuna og alveg fram að hádegi svimaði mig, fékk hita- og svitaköst, og varð mjög flökurt. Ekkert væl, bara harka þetta af sér.
En nú er ég að drepast í handleggnum, og rek það beint til heilahimnubólguCsprautunnar - og dreg þá ályktun að ég sé lífshættulega veik í vinstri handlegg.
Vona bara að það þurfi ekki að taka hann af.


miðvikudagur, ágúst 06, 2003

Hugsið ykkur! í dag er miðvikudagur. Hversu tíminn er fljótur að líða....
Verst bara að suma daga líður tíminn ekki jafn hratt í vinnunni. Ekki að það sé leiðinlegt. Neinei; bara smá. Það er til dæmis ekki gaman að standa inni í skjalaskáp (sem er brynvarin kompa) í fjörutíu mínútur - við það eitt að raða skjölum í möppur. En það er gaman að vera með head-settið og læra eitthvað nýtt í tölvunni, eins og tildæmis að setja upp Taskið og prenta út lánshæfi og svona. Verst að þurfa alltaf að standa upp til að ná í prentarann.... Og svo er ég búin að laga nokkra prentara. Þeir eru gamlir, og blöðin festast alltaf í þeim, en ýmsu má bjarga með plastvasa.
Ég þarf varla að taka fram, að núna ætti ég einmitt að vera að prenta út lánshæfi.....
Það er líka gjörsamlega óþolandi að vera að fara yfir skjöl... athuga fjóra hluti í hverju skjali - og fatta svo allt í einu, eftir kannski 27 skjöl að þú gleymdir að athuga hvort það væri komin samþykkt á kaskó! Og þurfa að fara yfir öll skjölin, og sækja um á sum. Þetta var að gerast.

En nú ætti ég e.t.v. að hætta að tala um vinnuna. Hún er mér bara svo ofarlega í huga, sjáiði til.

Mig langar til útlanda. Ég sakna mannlífsins, lyktarinnar (og þó var hún alls ekkert alltaf góð), ávaxtanna, verðlagsins, Fontainas!, Puck Puck, Therese, Camillu og gleðisvips Pieter. Kirsuberjatrjánna, búðanna, (hér myndi ég segja "bjórsins", væri ég ekki í gerbanni. Málið er, að mig langar ekkert í bjór - en það var gaman að drekka bjór). Volga rauðvínsins, og súpunum. Týnda hermannsins - en ég sakna alls ekki "bonsoir, ca va?"

En í vinnunni skemmti ég mér mikið við að finna upp vinnustaðahneiksli - hver sé hrifinn af hverjum, lesa í augngotur og glott og þykist vita hvenær einhver roðnar....