--> Björg bullar
<< current
Skoða gestabókina
Nafn :

Netfang :

Heimsíða :

Skilaboð :
This page is powered by Blogger. Isn't yours?

miðvikudagur, ágúst 20, 2003

Um daginn fór ég í sumarbústað Helga með fullt af fólki. Það var stuð. Bústaðurinn er í Hvalfirði, og ætla ég að koma því að, að ég held ég viti fátt jafn fallegt eins og Hvalfjörðinn. Sérstaklega hvalstöðvar-megin. Þessir olíutankar.... svo ofboðslega fallegt stílbrot. Rétt eins og hvítar heyrúllur á grænum túnum, og rafmagnsmöstur.
Í gær keyrði ég Hvalfjörðinn svo í annað skipti þessa vikuna. Skirdie, Skúli og ég sjálf keyrðum uppeftir til að ná í úlpur Skúla og helga, og skila gólfmottunni sem Inga tók með sér heim, einhverra hluta vegna!
Og svo elduðum við restina af útilegumatnum - steiktur skötuselur í hvítlaukssmjöri, steikt grænmeti, mozzarella salat og ég veit ekki hvað og hvað. Sjinoútonich (g&t), rauðvín og örlítill bjórsopi. Sátum langt fram á nótt, þar sem ég heyrði merkilegustu sögu sem ég á eftir að heyra! Vá, hvað ég varð heilluð. Byrjuðum svo á Amelie - en kláruðum hana ekki.
Þetta var annar hluti trílógíunnar sem ber ekki heiti - enn.

...

Í kvöld ætla ég að ná í stundatöfluna mína í musteri gleðinnar - mh.
Ég er að sjálfsögðu búin að ljúga því að krökkunum að mér hafi verið boðin föst vinna hér hjá Glitni, launin séu í kringum 200.000,- kall á mánuði - ég hafi aldrei haft gaman af því að læra í mh - og andi gleðinnar sé ekki nægilegur til að halda þar í mig. Ég held að Guðríður og Kristín hafi gleypt við þessu. Sérstaklega eftir að ég tala við Guðríði í símann í dag.
Krakkarnir eru semsagt allir að koma heim, SunnaogKalli koma í dag.
Helgi minn er hinsvegar að fara út, og ég á eftir að sakna hans svvoooooooooona mikið!

...

"Og kemur þá ekki bara í ljós að ég er örfþefja, og þefa bara örf"
"Við erum hérna fyrir 10 árum síðan - og það er gaman" Ég elska þig Helgi boy