--> Björg bullar
<< current
Skoða gestabókina
Nafn :

Netfang :

Heimsíða :

Skilaboð :
This page is powered by Blogger. Isn't yours?

föstudagur, febrúar 20, 2004

jájá, svona er þetta. þið getið kvartað yfir því að maður hætti, en dettur ekki í hug að halda áfram að fylgjast með. Tvískynnungur.
og þó heldur maður áfram...
Ein heima, at last.
Ég ef alltaf sérstaka ánægju af því að versla í matinn. Secret trick: sértu kona, farðu í hælaskóm en sértu karlkyns þá farðu með bindi.
Ég fór semsagt í miklum flýti í Krónuna rétt fyrir sjö (í hælaskóm) því síðan í yoga í dag hefur mig langað í grjónagraut. Hljómsveitaræfing Hljómsveitarinnar Björg sé veitt var ákveðin í miklum flýti, og þessvegna hafði ég ekki tíma til að sitja yfir pottunum. Hvað haldiði að mín hafi gert? Jú, hún fékk sér 1944 grjónagraut; mat fyrir sjálfstæða Íslendinga.
En það er ekki geðveikin, nei. Þegar ég tók upp úr pokanum sá ég, að ég hafði keypt erlenda agúrku!
Afhverju erlenda, það var ekkert annað til. Afhverju þá tuð? Þetta stendur á henni: Agúrka, framleitt fyrir BUR ehf. 300 gr. Ejido Verde - El Ejido.
Flott.... ætli hún sé þvegin upp úr íslensku vatni?!
Djöfuls rugl.


þriðjudagur, febrúar 17, 2004

Það er í raun ótrúlegt að ég skuli enn kunna notendanafnið að þessu bloggi hér....

Vinkona mín, hún Steinunn, er yndisleg. Hún er svo skemmtileg, hún er alveg mjög skemmtileg! Saman detta okkur fáránlegustu hlutir í hug, og ætla ég að leyfa ykkur að njóta þeirra hér, ef ég nenni.
Á laugardaginn fannst okkur til dæmis, að það væri mjööög sniðugt að geta skilið við foreldra sína. Þá fengi maður helming af þeirra eignum, og ef maður á systkini væri að sjálfsögðu best að vera fyrsta barnið til að skilja við þau, því maður fengi bara helming af eignunum, og væri maður barn númer tvö fengi maður helming af helming, o.s.frv.
Svo gæti ég til dæmis skilið bæði við mömmu mína og pabba, þar sem þau eru ekki gift.
Nú, svo er það auðvitað öfugt, þau gætu skilið við mig, en ég myndi að sjálfsögðu ekki samþykkkja að láta eftir spariféð - heldur bara debetkortareikninginn, og eftirláta þeim helming skulda minna! Múhahahha..... Það er aftur á móti ekki hægt, skilji barn við foreldri. Þá fengi barnið aðeins helming af eignum, ekki lánum.

jæja, þetta var ekki alveg jafn fyndið á prenti... yfir í annað.

Þess má geta að Hljómsveitin Björg sér veitt mun spila á árlegum lagningadögum í MH, föstudaginn 26. febrúar, klukkan 11. Endilega mætið, ég lofa skemmtun.