--> Björg bullar
<< current
Skoða gestabókina
Nafn :

Netfang :

Heimsíða :

Skilaboð :
This page is powered by Blogger. Isn't yours?

miðvikudagur, maí 12, 2004

Rétt eins og svo margir hef ég verið í prófum og þar af leiðandi gert allt annað en að læra.
Nú... Tobbi er Seth, og ég er sammála Ragnheiði (sem er Anna) að hann komist því beint inn á eiginmannalistann. Ég er aftur á móti Ryan!!


Which O.C. Character Are You? Find out @ She's Crafty

Ég hef meðal annars í "próf-fríinu" horft svolítið á sjónvarp. Á mánudaginn skipti ég um stöð í miðjum Survivor þætti yfir á Rúv til að fylgjast með dönsku drottningafjölskyldunni.
Svo ég spyr - hver var rekinn í burtu?!


þriðjudagur, maí 11, 2004

nú verður fjölmiðlafrumvarpinu (sem tekur lög 1. júní 2006) víst breytt þannig að hver hluteigandi má ekki eiga hlutdeild sem nemur meir en 5% hlut í fjölmiðlafyrirtæki sem veltur (eða er metið á meira en?) 2 milljörðum króna.

so I coun´t help but wonder, is sky really the limit?

Er það ekki það sem þessir blessuðu frjálshyggjuplebbar hafa löngum haldið fram? Öryggisnetið er lítið og veikt en þú mátt príla eins hátt og þú getur?
Má þá ekki segja að Davíð og co. séu að skjóta sig í fæturna með vélbyssu?
Fengu þeir hana kannski að láni hjá víkingasveitinni hans Björns?

Ef ég man rétt, þá þurfti ráðherra í noregi að segja af sér fyrir nokkrum árum síðan, því menn á hennar vegum notuðu vitlausa tölu í útreikningum fyrir ráðuneytið. mismunur talnanna var mjög lítill (t.d. 0,04 í stað 0,05) en engu að síður þurfti hún að segja af sér.
Mjög mörg svona dæmi voru tekin í útvarpinu um daginn - öll frá noregi, landi sem við þreytumst ekki á að bera okkur saman við.

Mistök eru mannleg og ég gert mörg! en mér finnst ekki að fólk eigi að svo verndað í sinni háu stöðu, á sínum ráðherrastóli, að það megi ekki reka það eða í það minnsta sparka aðeins í rassinn á því!
Mér finnst Björn Bjarnason hafa nægar ástæður, hafa gert nógu mörg mistök í starfi til að geta sagt af sér.
Ég vil að hann sé neyddur til að segja af sér.