--> Björg bullar
<< current
Skoða gestabókina
Nafn :

Netfang :

Heimsíða :

Skilaboð :
This page is powered by Blogger. Isn't yours?

föstudagur, júlí 23, 2004

Fyrstur á listann MMM 2004 (Myndarlegustu Menn Meistaradeildarinnar 2004) er úr Fram.
Vænlegir úr því liði voru einnig Ríkharður Daðason og Andri Fannar Ottósson. 
Ótvíræður sigurvegari er þó Eggert Stefánsson.   Hlýtur hann þann titil fyrir að vera eini myndarlegi maðurinn sem ég hef samskipti við á milli níu og sex á daginn. 
Eggert er sporðdreki, fæddur 1979, miðvörður hjá Fram og sendill hjá Heklu.  Hann er einnig bróðir Ólafs Stefánssonar handboltamanns og Jóns Arnar Stefánssonar körfuboltaleikara í Dallas.
Til hamingju Eggert, ég vona að þú lesir þetta ekki og komist á topp fimm listann.

 
Þá ber að tilkynna siðareglurna sem ég fer eftir: 
1.  Leikmennirnir sem til greina koma verða að vera fæddir frá 1979 - 1985

Góða helgi...




þriðjudagur, júlí 20, 2004

Hér hefst 37 endurlífgunartilraun þessa bloggs.
 
Ég er búin að uppgötva ágætis skemmtun.  Það er að skoða heimasíður fótboltaliðanna (nóg er af þeim!!) og finna fallega fótboltadrengi. 
Ég hef því ákveðið að taka fyrir einn meistaraflokk á dag, velja sigurvegara hvers flokks fyrir sig og setja að lokum saman topp 5 lista yfir þá leikmenn sem eru a) myndarlegastir og b) virðast hafa eitthvað vit í kollinum! 
23 leikmenn verða settir inn tilnefndir þá 23 vinnudaga sem ég á eftir.
Góða skemmtun, og notið kommentakerfið að vild.