--> Björg bullar
<< current
Skoða gestabókina
Nafn :

Netfang :

Heimsíða :

Skilaboð :
This page is powered by Blogger. Isn't yours?

þriðjudagur, júlí 27, 2004

Ég elska að ferðast.  ég elska allt sem viðkemur ferðamennsku. ég elska öll vesen.  ég elska að geta hjálpað dóttur vinnufélaga míns sem er á leið heim frá ungverjalandi með of mikinn farangur. ég elska að geta sagt fólki að ég hafi ferðast. ég elska að láta mig dreyma um útlönd. ég hata að elska að dreyma um útlönd því að það gerir lífið svo flókið og erfitt.  ég elska að vita að ég eigi eftir að ferðast.  ég elska að hafa ferðast.  ég elska líka að ferðast innanlands. ég elska að setjast upp í bíl og keyra í burtu.  ég elska að keyra í fallegu veðri. ég elska að keyra í rigningu. ég elska litina í náttúrunni og ég elska fjöllin og vötnin og fjallavötnin fagurblá. ég elska rafmagnsmöstrin og ég elska vatnstankana í hvalfirðinum.  ég elska alla bílaleiki sem ég kann og ég elska að geta hvergi leikið þá nema í bíl.  ég elska að taka litla króka frá þjóðvegi 1 og ég elska að keyra þjóðveg 1.  ég elska að hafa keyrt þjóðveg 1 238 sinnum, jafnoft og ég hef skrifað á þessa síðu.
ég elska að ferðast, og ég elska að ég er að fara að ferðast á föstudaginn.
ég elska að ferðast með skemmtilegu fólki, og ég elska að ég sé að fara að ferðast með hildigunni, afþví að ég veit að hún elskar líka að ferðast.