--> Björg bullar
<< current
Skoða gestabókina
Nafn :

Netfang :

Heimsíða :

Skilaboð :
This page is powered by Blogger. Isn't yours?

föstudagur, ágúst 06, 2004

MMM2004...

... er mun flóknara fyrirtæki en ég hefði nokkurntíman átt von á! Það eru alls ekki öll fótboltafélög sem átta sig á mikilvægi þess að hafa myndir á heimasíðunni sinni, já eða heimasíðu yfirleitt!!
Því er næsti maður inn á MMM2004-listann úr röðum Hauka, og er það Karl Óskar Kristbjarnarson. Karl Óskar er 22 ára, kýs að láta kalla sig Caligula og hefur spilað með Völsungi.
Völsungur er íþróttafélag Húsavíkur, og þess vegna man ég óljóst eftir Karli Óskari þegar ég afgreiddi hann í bókabúðinni, forðum tíð.

nú fer þetta að verða almennilegur listi...



þriðjudagur, ágúst 03, 2004

Ég þoli ekki svona helvítis daga þar sem ekkert gengur upp og allt er leiðinlegt og ömurlegt.
Vinnan mín er ömurlega leiðinleg og þurrprumpuleg. Skjalavinna er ekkert fyrir mig.
Og afhverju getur sumt fólk ekki mætt á réttum tíma, ha?